KA Podcastið
KA Podcastið
Knattspyrnufélag Akureyrar
Podcast by Knattspyrnufélag Akureyrar
KA Podcast - Upphitun fyrir bikarúrslit í blaki 2023
Jólin eru framundan í blakinu þegar úrslitahelgi Kjörísbikarsins fer fram í Digranesi 9.-12. mars og eru bæði karla- og kvennalið KA í eldlínunni. Auk þeirra á KA þrjú yngriflokkalið í úrslitum yngriflokka á sunnudeginum. Þeir Ágúst Stefánsson og Arnar Már Sigurðsson formaður blakdeildar KA ræða hér helstu hlutina í blakheiminum á sama tíma og þeir renna leiðina suður.
Mar 9, 2023
55 min
KA Podcastið - Arnar Grétars mættur norður
Hlaðvarpsþáttur KA snýr aftur eftir nokkra pásu en að þessi sinni fá þeir Siguróli Magni Sigurðsson og Hjalti Hreinsson til sín Arnar Grétarsson nýráðinn þjálfara KA í knattspyrnu til sín. Arnar er þrautreyndur í knattspyrnuheiminum og er heldur betur ástæða fyrir KA fólk að kynnast nýja stjóranum okkar. Sem leikmaður lék Arnar alls 71 landsleik fyrir Íslands hönd auk þess sem hann lék í atvinnumennsku með Rangers, AEK Aþenu og Lokeren. Þá gegndi hann stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá stórliðunum AEK Aþenu sem og Club Brugge en hann hefur einnig þjálfað Breiðablik og Roeselare í Belgíu. Þeir félagar fara yfir hina ýmsu hluti í spjalli sínu og klárt að þú vilt ekki missa af þessum þætti!
Jul 24, 2020
43 min
KA Topp 5 - Mesti Karakter
Pétur Heiðar Kristjánsson og Siguróli Magni Sigurðsson sjá um nýjan lið hjá KA sem ber nafnið Topp 5. Í fyrsta þætti fá þeir félagar til sín Skúla Eyjólfsson fyrrum leikmann KA og núverandi stjórnarmann. Í þessum fyrsta þætti renna þeir yfir mestu karakterana í knattspyrnuliði KA frá árinu 2000 til ársins í ár.
Apr 16, 2020
51 min
KA Podcastið - Sævar um uppbyggingu KA svæðisins
Sævar Pétursson framkvæmdarstjóri KA ræðir meðal annars nýja skýrslu um uppbyggingu íþróttamannvirkja á Akureyri en Sævar segir til að mynda að hagkvæmast væri að byggja upp aðstöðu KA í einu. Þá ræðir hann einnig stöðuna á knattspyrnuliði KA en liðið hefur leik á Bose mótinu á laugardaginn þegar strákarnir sækja Breiðablik heim. Einnig fer hann yfir nokkra möguleika er koma að því að lengja tímabilið í fótboltanum sem hefur verið þó nokkuð í umræðunni að undanförnu. Við hvetjum ykkur eindregið til að hlusta á þetta áhugaverða spjall sem skiptir okkur að sjálfsögðu miklu máli.
Nov 13, 2019
45 min
KA Podcastið - Donni gerir upp Þór/KA tímann
Halldór Jón Sigurðsson eða Donni eins og hann er iðulega kallaður mætti í KA Podcastið og gerir upp þriggja ára tíma sinn með Þór/KA. Auk þess spjallar hann um innkomu sína inn í þjálfarateymi karlaliðs KA um mitt sumar og er alveg ljóst að enginn ætti að láta þennan þátt framhjá sér fara.
Oct 21, 2019
42 min
KA Podcastið - Óli Stefán gerir upp sumarið
Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA gerir upp nýliðið sumar og fer yfir hin ýmsu mál tengdu KA liðinu sem endaði í 5. sæti Pepsi Max deildarinnar en það er besti árangur KA frá árinu 2002.
Sep 29, 2019
49 min
KA Podcastið - Almarr og Jón Heiðar
Almarr Ormarsson og Jón Heiðar Sigurðsson líta við í KA Podcastinu þessa vikuna en báðir fögnuðu þeir góðum sigri um helgina. Almarr ræðir 2-3 sigur KA á Víkingum í fótboltanum sem og sumarið til þessa. Jón Heiðar spjallar hinsvegar um 25-32 sigur KA á Fjölni í handboltanum sem og stemninguna í hópnum.
Sep 24, 2019
37 min
KA Podcastið - Elfar Árni, Gunnar Líndal og Henry Birgir
Hjalti Heinsson fær til sín góða gesti í KA Podcastinu þessa vikuna en Elfar Árni Aðalsteinsson ræðir magnaðan sigur KA í Grindavík en hann er nú orðinn markahæsti leikmaður í sögu KA í efstu deild. Gunnar Líndal Sigurðsson ræðir komandi tímabil hjá KA/Þór í handboltanum og spjallar um aðkomu sína að liðinu en hann tók við liðinu nú í sumar. Að lokum hringir Hjalti í Henry Birgi Gunnarsson sem mun sjá um Seinni Bylgjuna í vetur og spyr hann spjörunum úr hvað varðar komandi handboltatímabil. Ekki missa af skemmtilegum þætti!
Sep 4, 2019
34 min
KA Podcastið - Jonni, Stebbi og Óli Stefán
Það er heldur betur góð stjórn á hlutunum í KA Podcastinu þessa vikuna. Jónatan Magnússon og Stefán Árnason þjálfarar meistaraflokks KA í handbolta fara yfir stöðuna fyrir Opna Norðlenska mótið sem hefst á morgun. Þá mætir Óli Stefán Flóventsson þjálfari meistaraflokks KA í knattspyrnu í gott spjall um stöðuna og komandi leiki í Pepsi Max deildinni. Ekki missa af skemmtilegum þætti!
Aug 21, 2019
33 min
KA Podcastið - Ívar Örn og Donni
Hjalti Hreinsson fær þá Ívar Örn Árnason og Halldór Jón Sigurðsson (Donna) í skemmtilegt spjall. Ívar Örn sem hefur komið af krafti inn í lið KA ræðir innkomuna inn í KA-liðið sem og Bandaríska háskólaboltann þar sem hann hefur leikið listir sínar undanfarin ár. Donni fer yfir sumarið hjá Þór/KA og þau verkefni sem upp hafa komið. Hann er spenntur fyrir því að klára sumarið af krafti og halda áfram að gefa ungum leikmönnum tækifærið.
Jul 30, 2019
48 min
Load more