
Heiðursdoktorsathöfn Péturs Gunnarssonar by Hugvarp - hlaðvarp Hugvísindasviðs
Feb 5
42 min

Í þessum þætti ræða þau Sigríður Þorgeirsdóttir og Finnur Dellsén, prófessorar í heimspeki, um Helenu Longino, prófessor emeritu í heimspeki við Stanford-háskóla, en hún flytur opinn fyrirlestur á vegum Heimspekistofnunar HÍ í stofu 101 í Lögbergi miðvikudaginn 8. október kl. 15:00. Þetta verður fyrsti fyrirlesturinn í röð árlegra fyrirlestra í samstarfi Heimspekistofnunar og Duke-háskóla í Bandaríkjunum þar sem heimskunnu fræðafólki er boðið að flytja opinn fyrirlestur við Háskóla Íslands um rannsóknir sínar.
Sep 25, 2025
48 min

Rætt við Þorvarð Árnason, forstöðumann Rannsóknaseturs Háskóla Íslands á Höfn í Hornafirði, um bók hans Víðerni – verndun hins villta í náttúru Íslands. Í bókinni eru íslensk víðerni könnuð frá ólíkum sjónarhornum og leitað svara við helstu spurningum um þau: hvað víðerni eru í raun og veru, hvar þau fyrirfinnist á landinu, hvaða gildum þau búi yfir, hvernig hafi verið staðið að verndun þeirra og hvers vegna okkur beri að vernda víðerni.
Jun 16, 2025
41 min

Opnuð hefur verið ný útgáfa af stafræna sögulega mann- og bæjatalinu á slóðinni smb.mshl.is. Af því tilefni var rætt við Pétur Húna Björnsson, umsjónarmann þess.
Mar 21, 2025
28 min

Gunnþórunn Guðmundsdóttir prófessor ræðir við Sjón, Ástu Kristínu Benediktsdóttur dósent, Úlfhildi Dagsdóttur og Jón Karl Helgason prófessor um nýtt greinasafn á ensku um höfundarverk Sjón.
Feb 20, 2025
43 min

Hugvarp ræddi við Sofiya Zahova en hún var nýverið ráðin forstöðumaður Vigdísarstofnunar – alþjóðlegrar miðstöðvar tungumála og menningar.
Jan 6, 2025
37 min

Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Í henni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Guðjón Andri Jóhannsson, nemi í fornleifafræði, les kafla úr bókinni. Þetta er annar lestur af þremur.
Dec 2, 2024
10 min

Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Í henni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Guðjón Andri Jóhannsson, nemi í fornleifafræði, les kafla úr bókinni. Þetta er síðasti lestur af þremur.
Dec 2, 2024
6 min

Út er komin bókin Dauðadómurinn eftir Steinunni Kristjánsdóttur. Í henni segir Bjarni Bjarnason, sem kenndur er við Sjöundá á Rauðasandi, frá lífi sínu en Bjarni var tekinn af lífi fyrir morð árið 1805. Guðjón Andri Jóhannsson, nemi í fornleifafræði, les kafla úr bókinni. Þetta er fyrsti lestur af þremur.
Nov 29, 2024
11 min

Ástand Íslands um 1700. Lífshætti í bændasamfélagi er titillinn á nýrri bók þar sem kynntar eru nýjar rannsóknir á íslenska bændasamfélaginu í upphafi 18. aldar og fjallað um hugmyndir fræðimanna um það. Rætt er við Guðmund Jónsson, prófessor í sagnfræði við HÍ, en hann er ritstjóri bókarinnar og höfundur sex greina og Ólöfu Garðarsdóttur, prófessor í sagnfræði og forseta Hugvísindasviðs HÍ, en hún er höfundur kafla í bókinni sem fjallar um mannfjölda, fjölskylduna og heimili á tímum harðinda.
Sep 25, 2024
37 min
Load more
