X26 Sveitarstjórnarkosningar
X26 Sveitarstjórnarkosningar
Ritstjórn Morgunblaðsins
X26 - Skýr skil í Þingeyjarsveit
52 minutes Posted Apr 28, 2026 at 6:00 am.
0:00
52:20
Download MP3
Show notes

Þrír listar bjóða fram í Þingeyjarsveit þar sem tekist er á um virkjunarmál, innviði, skólastarf, atvinnuuppbyggingu og framtíð stærsta sveitarfélags landsins að flatarmáli.

Þingeyjarsveit er um margt einstakt sveitarfélag. Það þekur um 12% landsins, nær inn á Vatnajökul og byggðin dreifist um Fnjóskadal, Ljósavatnsskarð, Köldukinn, Bárðardal, Laxárdal, Aðaldal, Reykjadal og Mývatnssveit. Íbúar eru um 1.500.

Fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 16. maí eru þrír listar í framboði. Knútur Emil Jónasson leiðir Á-lista ábyrgðar, Eyþór Kári Ingólfsson fer fyrir N-listanum og Hallgrímur Páll Leifsson leiðir L-lista framfara.