
Þótt flestir telji sig vita hvað lyf er, skiptir skilgreining hugtaksins miklu mál. Það getur til að mynda komið við sögu í sakamálum og einnig þegar verið er að greina á milli fæðubótarefna og lyfja. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og sérfræðingur hjá Lyfjastofnun rýndi í hugtakið lyf í ritgerð sinnitil ML gráðu í lögfræði við Háskólann á Bifröst í vor. Hann segir frá í þessum þætti hlaðvarpsins.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Nov 11, 2024
28 min

Umræða um lyfjameðferð við ADHD kemur nokkuð reglulega upp, nú síðast með þeim upplýsingum að um fimmtungur ávísana á ADHD lyf sé upp á stærri skammta en ráðlagðir eru samkvæmt þeim rannsóknum sem markaðsleyfi byggja á. Í þessum þætti í hlaðvarpi Lyfjastofnunar er rætt um þessi mál við Vilhjálm Hjálmarsson, formann ADHD samtakanna, og Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðrúnu Selmu Steinarsdóttur, sérfræðinga hjá Lyfjastofnun sem m.a. sinna vinnslu aukaverkanatilkynninga.
-Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
May 27, 2024
35 min

Umfjöllun hlaðvarpsins að þessu sinni tengist málþingi sem fram fór í byrjun októbermánaðar þar sem fjallað var um skynsamlega endurskoðun lyfjameðferða, með sérstaka áherslu á fjöllyfjanotkun. Einn frummælenda á málþinginu var Einar Stefán Björnsson, prófessor við HÍ og lyflæknir á Landspítala. Hann fræðir hér um hvernig slík endurskoðun fer fram, talar um að þessum þætti lækninga mætti sinna í meira mæli, og hver ávinningurinn getur orðið.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Nov 16, 2023
21 min

Hvernig eru heiti lyfja valin, eru einhver viðmið sem þarf að fara eftir ? Þessum og fleiri spurningum er beint til Brynjars Örvarssonar, lyfjafræðings og sérfræðings hjá Lyfjastofnun. Hann hefur um árabil setið í nefnd hjá Lyfjastofnun Evrópu þar sem fjallað er um tillögur að lyfjaheitum.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Sep 20, 2023
23 min

Ákveðnar reglur gilda þegar ferðast er með lyf milli landa. Þær eru að einhverju marki mismunandi eftir löndum og heimssvæðum. Gott er að glöggva sig á þessum reglum áður en haldið er af stað, ferðalangar gætu þurft að gera grein fyrir lyfjunum sem þeir hafa meðferðis ef til tollskoðunar kemur. -Viðar Guðjohnsen lyfjafræðingur og eftirlitsmaður hjá Lyfjastofnun fer yfir helstu reglur sem gilda á þessu sviði.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Jul 6, 2023
17 min

Í þessum þætti í Hlaðvarpi Lyfjastofnunar er fjallað um lyf við sumartengdu ofnæmi, ofnæmi vegna frjókorna og skordýrabita. Erla Hlín Henrysdóttir, lyfjafræðingur í samskiptadeild Lyfjastofnunar, segir frá því að ýmis lyf sem geta slegið á óþægindi vegna þessa séu í boði, þar á meðal lausasölulyf. Hún hvetur fólk til að afla sér upplýsinga um lyf áður en notkun þeirra hefst. Benda má á lyfjafræðinga og lyfjatækna apótekanna, og fylgiseðla sem finna má á lyf.is. Grein um sumartengt ofnæmi má lesa á vefnum lyfjastofnun.is.
Umsjón hlaðvarps: Hanna G. Sigurðardóttir
Jun 12, 2023
14 min

Oft er hægt að draga úr lyfjakostnaði með því að velja ódýrara sambærilegt lyf. Lyfjastofnun raðar lyfjum í svokallaða skiptiskrá og þar eru flokkuð saman sambærileg lyf í sama viðmiðunarverðflokki, sem þó geta verið á mismunandi verði. Þetta er það sem um ræðir þegar sjúklingum er boðið samheitalyf í apóteki, þ.e. sama lyf frá öðrum framleiðanda. Þá er um ódýrari valkost að ræða en lyfið sem læknirinn ávísaði.
Í hlaðvarpsþættinum fræðir Ólöf Þórhallsdóttir, lyfjafræðingur og sviðsstjóri Umsókna- og samskiptasviðs Lyfjastofnunar, um frumlyf og samheitalyf, hvernig ódýrari valkostur verkar á sama hátt og ávísaða lyfið, og hvernig slíkur valkostur kemur bæði sjúklingnum og samfélaginu til góða.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Feb 8, 2023
14 min

Sveinbjörn Gizurarson prófessor í lyfjafræði segir frá verkefni sem hann hefur unnið að síðustu sex ár, við að þróa nýtt lyfjaform malaríulyfs, og koma á fót lyfjaverksmiðju í Malaví. -Þessi saga fylgdi óvænt með sem bónus þegar rætt var við Sveinbjörn um líftæknilyfshliðstæður í síðasta hlaðvarpsþætti.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Dec 21, 2022
15 min

Í þessum þætti er fjallað um líftæknilyf og líftæknilyfshliðstæður.
Töluverður munur er á líftæknilyfjum (e. biologics) og eldri hefðbundnum lyfjum. Þau síðarnefndu eru efnasmíðuð sem kallað er, líftæknilyfin framleidd með aðstoð lífvera. Líftæknilyfshliðstæður (biosimilars) eru síðan nokkurs konar samheitalyf líftæknilyfja.
-Rætt er við Pál Þór Ingvarsson lektor og Sveinbjörn Gizurarson prófessor við lyfjafræðideild Háskóla Íslands.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Nov 9, 2022
40 min

Rúna Hauksdóttir Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir frá þeim aðgerðum sem ráðist hefur verið í til að sporna gegn lyfjaskorti, og undirstrikar að eitt af hlutverkum stofnunarinnar samkvæmt lyfjalögum er að sinna eftirliti með framboði lyfja.
Meðal þess sem eflt hefur verið er lyfjaskortsteymið, en það miðlar upplýsingum um fyrirsjáanlegan skort á vef stofnunarinnar og leitar lausna til að draga úr áhrifum skorts. Ýmis konar einföldun vegna skráningarferla hefur komið til, og til skoðunar er hvernig rafrænar lausnir geta orðið til að draga úr líkum á lyfjaskorti.
Umsjón: Hanna G. Sigurðardóttir
Oct 14, 2022
14 min
Load more
