Reykjavíkurfréttir
Reykjavíkurfréttir
Sanna Magdalena Mörtudóttir, Laufey Líndal Ólafsdóttir
Borgarmálin frá sjónarhóli þeirra sem sjaldan er haft samráð við í rekstri og uppbyggingu borgarinnar. Borgarfulltrúar Sósíalistaflokksins flytja fréttir frá málefnum borgarinnar. Umsjón: Sanna Magdalena Mörtudóttir og Trausti Breiðfjörð
Reykjavíkurfréttir 8. okt - Talað og tekið á málum
Þriðjudagur 8. október Talað og tekið á málum Borgarstjórnarhópur Sósíalista fer yfir það helsta sem hefur átt sér stað innan borgarinnar á liðnum dögum; tillögu um mælingar á þáttum er tengjast gjaldfrjálsum máltíðum svo hægt sé að fylgjast með þróun þeirra þátta, svo sem næringargildi, gæði og magn. Við munum einnig fjalla um tillögu Sósíalista um samvinnuvettvang við stéttarfélögin sem fékk brautargengi innan borgarinnar sem og breytingar á gjaldskrá í akstursþjónustu fatlaðra, þar sem loks á að miða gjaldið við það sem þekkist hjá Strætó bs
Oct 8, 2024
26 min
Reykjavíkurfréttir 1. okt - Samgönguleysi í Gufunesi
Þriðjudagur 1. október Reykjavíkurfréttir: Samgönguleysi í Gufunesi Í þætti dagsins ræðum við um almenningssamgöngur frá sjónarhóli íbúa í Gufunesi en gestir okkar, Móberg Ordal og Rakel Glytta Brandt heilluðust af vistvænum hugmyndum um sjálfbært þorp og samvinnu íbúa en enduðu samgöngulaus og félagslega einangruð í Jöfursbás.
Oct 1, 2024
48 min
Reykjavíkurfréttir - Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu
Þriðjudagur 24. september Reykjavíkurfréttir: Slökkvistarf í eiginlegri og óeiginlegri merkingu Ásta Dís og Sanna ræða ýmislegt úr borgarmálum síðustu viku. Samþykkt var að skoða nánar tillögu Sósíalistaflokks í borgarstjórn um næringargildi gjaldfrjálsra skólamáltíða. Ásta Dís segir frá reykköfun, óleyfisbúsetu og fleiru í heimsókn sinni til slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins en aðalfundur þeirra var haldinn á föstudaginn var í Hafnarfirði og þar kom ýmislegt fróðlegt í ljós. Kjalarnes bar á góma en. einnig ræðum við stuttlega um NPA (notendastýrð persónuleg aðstoð).
Sep 24, 2024
29 min
Reykjavíkurfréttir - Ójöfnuður í skólakerfinu
Þriðjudagur 17. september Ójöfnuður í skólakerfinu Í þessum þætti ræðum við um ójöfnuð og birtingarmyndir þess í skólum. Þórunn Einarsdóttir kennari í framhaldsskóla kemur til okkar og ræðir við okkur um skólastarfið, falinn kostnað við skólaviðburði og misjafnar aðstæður nemenda. Þá veltum við því einnig upp hvort að framhaldskólar ættu að vera gjaldfrjálsir.
Sep 17, 2024
41 min
Reykjavíkurfréttir 10. sept - Hvað er málið með þessa borgarstjórn?
Þriðjurdagur 10. september Reykjavíkurfréttir - Hvað er málið með þessa borgarstjórn? Í þessum þætti kynnum við Ástu Þórdísi Skjalddal Guðjónsdóttur til leiks og starfs í borgarstjórnarflokki Sósíalista. Við ræðum hvernig reynsla hennar úr grasrót fólks í fátækt nýtist inn í pólitíkina og förum yfir starf okkar sem kjörinna fulltrúa í borginni, hin ýmsu ráð og aðkomu að þeim.
Sep 10, 2024
37 min
Reykjavíkurfréttir 3. sept - Umhverfisvænar og  heilsusamlegar skólamáltíðir
Þriðjudagur 3. september Reykjavíkurfréttir - Umhverfisvænar og heilsusamlegar skólamáltíðir Í þessum fyrsta haustþætti Reykjavíkurfrétta eru gestir okkar þeir Ludvig Guðmundsson læknir og Stefán Jón Hafstein fyrrverandi formaður menntaráðs Reykjavíkur en báðir eru þeir félagar í Aldin eins og fram kemur í þættinum. Þátturinn fjallar um gjaldfrjálsar skólamáltíðir sem eru jú hluti af samþykktum ríkis og sveitarfélaga við 20 stéttarfélög sem hluta af kjarabótum og er komið til framkvæmda á þessu skólaári en umræðan að þessu sinni er út frá umhverfislegu sjónarmiði. Umsjónarmenn þáttarins eru þær Sanna Magdalena Mörtudóttir og Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir
Sep 3, 2024
27 min
Andrými
Reykjavíkurfréttir, þriðjudagur 14. maí Andrými Við fáum innsýn inn í starfsemi Andrýmis sem er róttækt félagsrými sem hefur fyrst og fremst það hlutverk að útvega aðstöðu fyrir grasrótarhópa og einstaklinga til að hittast og skipuleggja baráttu sína fyrir auknu jafnrétti og frelsi. Með sjálfstæðri starfsemi sinni og skipulagningu vill Andrými greiða leið fyrir frekari baráttu í anda valdeflingar, frelsis, jafnréttis og gagnkvæmrar hjálpar. Jakob Beat Altmann, Elías Snær Einarsson og Ragnheiður Freyja Kristínardóttir segja okkur frá Andrými.
May 14, 2024
39 min
Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa
Reykjavíkurfréttir, 30. apríl Húsnæði, hótel, leikskólar og einhverfa. Sanna Magdalena Mörtudóttir og Halldóra Hafsteinsdóttir fjalla um það helsta sem hefur átt sér stað í borgarmálum upp á síðkastið. Við fjöllum um fyrirhugaða 16 hæða hóteluppbyggingu sem á að reisa á Skúlagötu, umræður um byggingarfélag Reykjavíkurborgar, laun á leikskólum og fræðslumyndband velferðarsviðs um einhverfu.
Apr 30, 2024
35 min
Metnaðarleysi í Mjódd
Reykjavíkurfréttir, 23. apríl Metnaðarleysi í Mjódd Sanna Magdalena Mörtudóttur ræðir við Söru Stef Hildar um þjónustuleysið sem birtist á skiptistöðinni í Mjódd. Um er að ræða stærstu skiptistöðina í almenningssamgangnakerfi borgarinnar. Mikill þörf er á úrbótum til þess að gera svæðið aðlaðandi og laga að þörfum strætónotenda.
Apr 23, 2024
49 min
Eftirlit, sorp og mannréttindabrot
Reykjavíkurfréttir, 27. febrúar, 2024 Eftirlit, sorp og mannréttindabrot Sanna, Andrea og Halldóra skoða nánar virkni eftirlitsmyndavéla en nýverið kom út skýrsla sem sýndi fram á að bæta þurfi verulega framkvæmd rafrænnar vöktunar og setja þarf fram leiðbeiningar um rafræna vöktun, t.a.m. varðandi aðgang að efni úr slíkri vöktun. Þá skoðum við hvernig söfnun á lífrænum úrgangi er háttað í öðrum sveitarfélögum á Norðurlöndunum og hvernig pokum undir lífrænan úrgang er komið til íbúa. Við ræðum einnig langa biðlista eftir húsnæði en í desember 2023 voru 207 manneskjur þar af eru 162 að bíða eftir fyrstu úthlutun í húsnæði sem hentar þörfum fatlaðra í borginni og 45 á bið eftir milliflutningi úr einu húsnæði í annað Skýrsluna um rafræna vöktun má nálgast hér https://www.innriendurskodun.is/utgefid-efni/eftirlitsmyndavelar-a-vegum-reykjavikurborgar---frumkvaedissko%C3%B0un.
Feb 27, 2024
41 min
Load more