Háski
Háski
Unnur Regina
Háski er podcast þáttur sem fjallar um fólk sem hefur lent í lífsháska og hvernig þeim tókst að komast í gegnum ótrúlegar aðstæður. Mannshugurinn og líkaminn er magnað fyrirbæri og lygilegt hvað manneskjan sigrar oft í erfiðum aðstæðum. Endilega fylgið haskipodcast á Instagram en þar koma allar upplýsingar og myndir tengdar þáttunum.
.Stríð færa okkur aldrei endalausan frið, bara endalausan dauða.
Árið er 2022 og við horfum upp á stríð og innrás inn í land fullu af saklausum borgurum. Í þætti dagsins ætlum við að fara yfir nokkrar sögur einstaklinga sem lifað hafa af stríð og afleiðingar þess. Bæði nýjar og gamlar. Við kynnum okkur afleiðingar stríðs og mikilvægi þess að raddir þessa fólks heyrist, fólksins sem lifði af skelfilega hluti. Í stríði er enginn sigurvegari, þau bitna bara á saklausu fólki. All war is a symptom of mans failure as a thinking animal. Þessi þáttur er mér mikilvægur og finnst mér mikilvægt að sem flestir heyri raddir þessa fólks. Endilega deilið þættinum eins og vindurinn, því við sem manneskjur verðum að muna söguna, að muna raddir þeirra sem hafa varað okkur við. Þeirra sem hafa sagt sínar sögur til að koma í veg fyrir að sagan endurtaki sig aftur.
Feb 26, 2022
1 hr 6 min
Everest Part 2
Í þætti dagsins tökum við upp þráðinn um Everest og leiðangra sem farnir voru löngu áður en nokkur maður komst á toppinn.
Nov 29, 2021
52 min
McDonalds Massacre
Háski Halloween special! Þann 18. Júlí árið 1984 gekk James Huberty inn á McDonalds í San Ysidro þungvopnaður og hóf að skjóta fólk. ATH Þátturinn er ekki fyrir viðkvæma. Styrktaraðilar : Coca-Cola á Íslandi, Preppup & Blush.is
Oct 31, 2021
49 min
Joe Simpson og Simon Yates
Í þætti dagsins heyrum við sögu Joe Simpson og Simon Yates sem fóru fyrstir manna upp vestur hlið Siula Grande með skelfilegum afleiðingum. Í lokin heyriði mig svo blaðra mikið um þetta mál enda virkilega umdeilt. Styrktaraðilar þáttarins eru Coca-Cola á Íslandi, Blush.is & Preppup.
Oct 21, 2021
44 min
Börn í Háska
Í þætti dagsins heyrum við fjórar sögur, sögurnar eiga það allar sameiginlegt að fjalla um börn sem lentu í lífshættulegum aðstæðum. Styrktaraðilar þáttanna eru : Blush.is, Preppup, Bíltrix og Coca-Cola á Íslandi.
Oct 15, 2021
46 min
Kong Trygve
Árið 1907 var skipið Kong Trygve í Íslands siglingu með 33 menn um borð. Ekki allir lifðu þessa siglingu af eftir að skipið lenti í miklum hrakningum vegna óveðurs. Í þætti dagsins heyrum við sögu skipsins og kynnumst því hvernig lífið á sjó var á þessum árum.  Instagram : @haskipodcast Styrktaraðilar þáttanna eru Preppup, Bíltrix, Blush.is & Coca-Cola á Íslandi.  Heimildir þáttarins : Þrautgóðir á raunastund eftir Steinar J. Lúðvíksson.
Oct 7, 2021
42 min
Geimflaugar og Kafbátar
Geimflaug og kafbátur? Þarf að segja eitthvað meira?  Styrktaraðilar : Coca-Cola á Íslandi, Preppup og Bíltrix@haskipodcast á Instagram
Sep 23, 2021
39 min
Brandon & Brandy Wiley
Sól, sandur, strendur, sundlaugarbakkar og kokteilar. Fullkominn brúðkaupsferð. Hvað gæti farið úrskeiðis? Jú, mögulega allt. Í þætti dagsins heyrum við sögu hjónanna Brandon & Brandy Wiley sem fóru í örlagaríka brúðkaupsferð.haskipodcast á InstagramStyrktaraðilar : Coca-Cola á ÍslandiPreppup BíltrixMelódía Café
Sep 17, 2021
44 min
The Hindenburg
Komiði sæl og blessuð! Í þætti dagsins heyrum við um sögu the Hindenburg, flottustu flugmaskínu Þjóðverja. Þátturinn er í boði Coca-Cola á Íslandi & Bíltrix!
Sep 10, 2021
36 min
Föstudags Háski!
Komiði sæl og blessuð snúðarnir mínir. Í þætti dagsins ætlum við að fara yfir fjögur mál, mál einstaklinga sem eiga sér öll sögu af lífsháska vegna gjörða annara.
Sep 3, 2021
37 min
Load more