Gullkastið
Gullkastið
Kop.is
Gullkastið – Salah Kveður í Sumar
1 hour 12 minutes Posted Mar 24, 2026 at 8:16 pm.
0:00
1:12:38
Download MP3
Show notes

Sprengja á meðan við vorum að taka upp, Egypski kóngurinn Mo Salah tilkynnti að hann ætlar að kveðja í sumar, við bregðumst við þeim fréttum þegar um 10 mínútur eru liðnar af þættinum. Brottför hans þurfum við auðvitað að gera mun betri skil þegar líður á vorið enda Salah einn af þeim allra stærstu í sögu félagsins. Hér er t.d. dæmi um þá gleði sem hann hefur gefið okkur sem kannski sést ekki á metalistanum
Including Man Utd players, Mohamed Salah is the eighth-highest PL scorer at Old Trafford in the 2020s

Liverpool er annars í frjálsu falli í deildinni og Meistaradeildarsæti ólíklegt eins og liðið er að spila.
Framundan eru fjórir leikir í þremur keppnum sem gætu haft töluvert að segja um framhaldið.
Staða Arne Slot er vægast sagt ekki góð, skoðum aðeins hvaða nöfn við gætum verið að horfa sig í sumar (eða fyrr) geri Liverpool breytingar á toppnum sem verða að teljast ansi líklegar (nauðsynlegar) eins og staðan er núna.
Skoðum leiki vikunnar, góðan sigur á Gala og ömurlegt tap í kjölfarið gegn Brighton.

Stjórnandi: Einar Matthías
Viðmælendur: Maggi

Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:

Gull Áfengislaus / Verdi Travel  / Ögurverk ehf