Gullkastið
Gullkastið
Kop.is
Gullkastið er hlaðvarpsþáttur Kop.is sem hóf göngu sína í maí árið 2011.
Gullkastið - Atletico Arsenal
Liverpool voru bókstaflega flautaðir úr leik á Anfield gegn svari Englands við Atletico Madrid. Hroðaleg úrslit og ákaflega pirrandi leikur en frammistaða Liverpool ekki alslæm og liðið ennþá í mótun. Áhugaverð úrslit í öðrum leikjum í deildinni og tími á uppfært PowerRank. Er Liverpool ennþá hvað helst í baráttu við Man Utd eins og við töldum fyrir mót? Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór  
Nov 2
1 hr 8 min
Gullkastið - Handbragð Iraola
Handbragð Iraola er smátt og smátt farið að sjást á Liverpool liðinu og miklu betri liðsheild farin að myndast en við sáum oft síðasta vetur. Frábær sigur gegn Brighton um helgina og í gærkvöldi skoraði Joe Gomez sigurmarkið! Spáðum í deildinni almennt með áherslu á stórskemmtilegt United lið Michael Carrick, nýtt Ögurverk lið er farið af stað og framundan er risaslagur gegn Arsenal á Anfield. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór    
Oct 29
1 hr 3 min
Gullkastið - Pennahittingur
Það er hittingur hjá Kop.is samsteypunni og við hentum í Gullkast af því tilefni. Staðan á liðinu í dag, leikir vikunnar og alvöru Ögurverk lið. Stjórnandi: Maggi Viðmælendur: Daníel, Óli Haukur, Hannes, Ingimar og Ívar Örn Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór  
Oct 24
1 hr 13 min
Gullkastið - Framfarir frá síðasta tímabili
Liverpool vann tvo útileiki í þessari viku og skoraði samtals átta mörk sem er einmitt það sem þurfti eftir þunga helgi þar á undan. Frábær útisigur gegn erfiðu liði Brentford í hörkuleik þrátt fyrir töluvert mótlæti og markaveisla í Austurríki gegn LASK. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór  
Oct 19
55 min
Gullkastið - Leiðinlegur Farsi
Vörumerkið Enska Úrvalsdeildin er í vanda og verður það þar til búið er að afgreiða refsingu Man City. Leikurinn um helgina var sá fyrsti eftir að dómurinn fellur og skilur vægast sagt eftir óbragð í munni knattspyrnuáhugamanna. Svona getur þetta ekki gengið áfram, það er flestum ljóst. Liverpool missti þrjá lykilmenn í meiðsli í lengsta landsleikjahléi sögunnar sem hjálpaði ekkert til við undirbúning á leik gegn liði sem hefur komist upp með að svindla á áður óþekktum skala í 15 ár. Hrikalega óstöðugur dómari frá stór Manchester svæðinu hjálpaði alls ekki til og í raun kálaði annars sæmilegum leik. Það hjálpaði ekki til með óbragðið. Næst eru það útileikir gegn LASK Í Austurríki og Brentford í London og ljóst að Iraola þarf að fara ná að innleiða sína hugmyndafræði í liðið og ná betra flæði í leik liðsins. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór  
Oct 12
58 min
Gullkastið - Athyglin á Anfield
Viðureign Liverpool og Man City var áhugaverð fyrir þetta landsleikjahlé en áhuginn á þeim leik hefur heldur betur margfaldast eftir að niðurstaða fékks loksins í 115 ákærur sem hangið hafa yfir Man City undanfarin ár. Spáum í þeim leik og stöðunni á þessu risa máli. Ögurverk liðið er á sínum stað og við spáum í leikjum helgarinnar. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is ferðina Palace leikinn 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks. Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Oct 7
59 min
Ævintýralegt Svindl
Átta árum eftir að Football Leaks síðan birti upplýsingar um ótrúlegt fjármálasvindl Man City er enska knattspyrnusambandið loksins búið að komast að því að þeir voru sekir. Þetta var öllum ljóst fyrir þennan stóra leka árið 2018 en hann girti svo rosalega niður um Man City að ekki var lengur hægt að horfa framhjá þessu. Samt hefur þetta tekið átta ár! Flest af þeim ár þar sem Liverpool var með frábært lið og ætti að skoðast í enn betra ljósi núna. Augljóst að þetta var stórt umræðuefni í annars daufu landsleikjahléi. Julian Ward er tekinn við DoF stöðunni og það stefnir í meiðslavandræði í sóknarlínunni hjá Liverpool eftir þessa bölvuðu landsleiki. Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Sérstakar þakkir fá samstarfsaðilar þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti: Verdi Travel - Minnum á Kop.is Hópferðina á leikinn gegn Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. GB Hús / Sólpalur.is - Bjóðum þessa fagmenn velkomna leik leiks, þetta er símtalið ef ykkur vantar smiði Ögurverk ehf - Langbestu jarðvinnuverktakar landsins Gull áfengislaus - Okkar Bjór
Sep 30
51 min
Gullkastið - Fyrsti Kafli
Litla örmótið fram að fyrsta landsleikjahléi er á enda og smá mynd komin á mótið. Fórum yfir stöðuna hjá toppliðunum og byrjunina á mótinu. Liverpool náði í þrjú góð stig gegn Bournemouth um helgina og var fyrsta liðið til að fara með öll þrjú stigin þaðan síðan í janúar.   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember (Örfá sæti laus) Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:  
Sep 23
55 min
Gullkastið -  Work In Process
Ungu strákarnir komu með orku í leikinn gegn Tottenham í deildarbikarnum sem sárlega vantaði í helstu lykilmenn Liverpool gegn Fulham. Hellingur eftir þessa viku fyrir Iraola að greina á meðan hann lærir inn á hópinn sem hann er með hjá Liverpool. Ögurverk liðið er á sínum stað, Gullstund(ir) vikunnar og framundan deildarleikur fyrir voðalega langt landsleikahlé   Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn og Maggi Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:
Sep 16
50 min
Gullkastið - Framfarir
Tveir sigurleikir í röð í þessari viku og Liverpool lið sem við þekkjum mun betur og líkar betur við. Það eru framfarir milli leikja þessa dagana og spennandi breytingar á leik liðsins sem enn á þó töluvert í land. Spáum aðeins í leikmannaglugganum og tíma Richard Hughes hjá Liverpool Ögurverk liðið er á sínum stað og tveir leikir framundan í næstu viku líka. Minnum á Kop.is Hópferðir í vetur með Verdi Travel. Leeds helgina 11.- 14. desember Crystal Palace helgina 15. - 18.janúar. Sjá nánar á heimasíðu Verdi Travel Stjórnandi: Einar Matthías Viðmælendur: SSteinn Þökkum að vanda samstarfsaðilum þáttarins fyrir að hjálpa okkur að halda síðunni úti:  
Sep 10
49 min
Load more