
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir 6. umferð og lögðu á ráðin fyrir 7. umferð.
Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 17. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Everton - Chelsea kl 11:30 sama dag.
Oct 15

Enska úrvalsdeildin er aftur farin af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé.
Það var nóg að ræða í Enski boltinn hlaðvarpinu að þessu sinni.
Manchester City fór á Anfield og vann þar 0-3 sigur í skugga þess að hafa verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í landsleikjahléinu. City er á toppnum en það veit enginn hvað gerist í framhaldinu.
Það er mikill hiti á Michael Carrick eftir 1-1 jafntefli Manchester United og Tottenham, Jordan Henderson blés til sýningar hjá Chelsea og Arsenal vann endurkomusigur á sprækum Leedsurum. Farið var yfir allt þetta helsta.
Guðmundur Aðalsteinn, Haraldur Örn og Arnór Gauti Ragnarsson eru í þættinum.
Oct 13

Innkastið eftir 25. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Kári Snorrason.
Eyjamenn eru fallnir og annað af Akureyrarliðunum mun fylgja, KR-ingar hafa svo gott sem tryggt sér annað sætið og það vantar ekki slúðursögurnar á þessum árstíma.
Oct 11

Útvarpsþátturinn Fótbolti.net laugardaginn 10. október. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.
Farið er yfir fótboltafréttir vikunnar þar sem agabrot innan íslenska landsliðs bar hæst. Besta deildin fer aftur af stað og rýnt er í slúðrið.
Sævar Pétursson framkvæmdastjóri KA kemur í heimsókn og ræðir um sínar pælingar varðandi umræðuna um að breyta fyrirkomulagi Bestu deildarinnar.
Þá mætir Lúðvík Gunnarsson, þjálfari U21 landsliðsins, en liðið er einu einvígi gegn Grikklandi frá því að komast á EM.
Oct 10

Fram hefur átt mjög gott tímabil, karlalið félagsins verður í Evrópukeppni næsta sumar í fyrsta sinn í rúman áratug og kvennaliðið hélt sæti sínu í Bestu deildinni þvert á spár.
Fyrrum atvinnu- og landsliðsmaðurinn Guðmundur Torfason, meðlimur í 19 marka klúbbnum, er formaður fótboltadeildar Fram.
Gummi mætti á skrifstofu Fótbolta.net og ræddi við Sæbjörn Steinke í tilefni af stórleik Fram og KR sem fram fer annað kvöld og góðu tímabili Framara.
Oct 9

Óskar Borgþórsson og Daníel Hafsteinsson mættu í hljóðver til Kára Snorrasonar og fóru yfir tímabilið hjá Íslandsmeisturum Víkings.
Víkingar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum undir lok síðasta mánaðar og urðu þar með fyrsta liðið í tæpan áratug sem tekst að verja titilinn.
Meðal umræðuefna var árangurinn í deildinni, rígurinn gegn KR og Evrópa.
Oct 8

Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið. Albert og Sindri settust niður í Coke stúdíóinu eftir lengsta landsleikjahlé sögunnar og lögðu á ráðin fyrir næstu umferð.
Fresturinn til að gera breytingar rennur út laugardaginn 10. október kl. 10:00 en umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.
Oct 7

Innkastið gerir upp landsleikjagluggann hjá Íslandi og skoðar hvaða leiki verða um næstu helgi í Bestu deildinni.
Elvar Geir, Valur Gunnars og Valur Páll Eiríksson í hljóðveri.
Íslandi mistókst að vinna Eistland en er samt á toppi riðilsins, U21 landsliðið komst í umspil með frábærum lokakafla í riðli sínum og Besta deildin hefst loks að nýju eftir endalausan landsleikjaglugga.
Oct 6

Valur og Víkingur féllu úr Bestu deild kvenna síðasta föstudag eftir rosalega lokaumferð í neðri hluta deildarinnar.
Báðum liðum var spáð talsvert betra gengi en sumarið var virkilega erfitt.
Í efri hlutanum var líklega leikur ársins spilaður í dag þegar Þróttur heimsótti Breiðablik. Það er vonin að við fáum úrslitaleik í lokaumferðinni.
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson fóru yfir þetta allt saman.
Oct 4

Úvarpsþátturinn Fótbolti.net 3. október. Elvar Geir, Kári Snorra og Baldvin Borgars fara yfir það helsta í fótboltanum.
Þátturinn er sendur út á leikdegi hjá landsliðinu. Frammistaða Íslands í Þjóðadeildinni er skoðuð og hitað upp fyrir leik gegn Búlgaríu.
Þá er farið yfir allt það helsta sem er í gangi í boltanum; mögulegar breytingar á Bestu deildinni, U21 landsliðið, mál Manchester City og fýluna í Ronaldo.
Á línunni: Börkur Edvardsson og Benedikt Bóas Hinriksson.
Oct 3
Load more
