
Er hægt að mæla alvöru miðaldra lífsgæði – og hvað segir það um mann að horfa viljandi á Married at First Sight? Í 24. þætti Menn eins og við fara Einar og Baldur yfir lista með 15 atriðum sem eiga að skilgreina alvöru lúxus miðaldra mannsins. Þeir skoða listann, sannreyna hann eftir eigin höfði og komast að því að lífsgæðin felast stundum í mun hversdagslegri hlutum en maður hefði haldið. Um leið reyna þeir að komast til botns í einni stærstu ráðgátu þáttarins: Af hverju í ósköpunum horfir Baldur viljandi á Married at First Sight? Eins og venjulega fara þeir félagar á kostum í umræðum um allt það sem skiptir miðaldra menn gríðarlega miklu máli – en mögulega engan annan. Aðalbakhjarlar Menn eins og við eru: hertzlangtimaleiga.is kolski.is gefur.is Bpro.is
Sep 10
1 hr 12 min

Baldur var staddur í Nashville fyrir algjöra tilviljun daginn sem Dolly Parton féll frá og endaði á því að leggja blóm við stjörnu hennar. Þaðan liggur leiðin í kúrekahatta, strútsleðursstígvél og manninn sem spurði: „Are you from around here?" Einar og Baldur ræða líka opin sambönd, sameiginleg áhugamál hjóna, hárvörur miðaldra karla og róbótasláttuvélina sem enn neitar að vinna vinnuna sína. Sem sagt flest það sem skiptir þig nákvæmlega engu máli.
Sep 1
1 hr 4 min

MENN EINS OG VIÐ #22 – Heim í Búðardal Einar og Baldur fara yfir allt það mikilvægasta sem skiptir engu máli: hárfund með tugum nýhærðra manna, deilur Baldurs við slátturóbótinn, Einar fór í þjóðbúningamessu, hvort Menningarnótt sé orðin Menningarkvöld og hvernig tveir lofthræddir menn komast upp á Bolafjall. Svo fer Baldur heim í Búðardal, rifjar upp sumrin í sveitinni, fólkið, ættirnar og gömlu sögurnar. Smá ferðalag, smá fortíð og fullt af algjörlega áríðandi en gagnslausu spjalli. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Aug 21
1 hr 5 min

MENN EINS OG VIÐ #21 – „Er þetta fast?" Þá er komið að stóra Sólmyrkvaþættinum en í þessum þætti ræða þeir Einar og Baldur nákvæmlega ekkert um sólmyrkvann, enda nóg annað sem þarf að leysa. Til dæmis muninn á pizzu og pinsu, hvers vegna menn fara í hárígræðslu og verða svo hissa þegar hárið heldur áfram að vaxa – og skilja ekkert í því af hverju þeir þurfa þá allt í einu að fara í klippingu. "Er þetta bara fast á?" Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is „Er þetta fast?"
Aug 12
1 hr 2 min

Menn eins og við #20 – Verslunarmannahelgarþátturinn Þessi þáttur er helgaður Verslunarmannahelginni og sögum af fræknum ferðalögum, vafasömum ákvörðunum og furðuverkum sem verða helst til þegar fólk er komið í frí. Þar er meðal annars sagan af vininum sem vaknaði með tvær konur sér við hlið, mundi ekki neitt en hafði sem betur fer tekið mynd til öryggis, og rútubílstjóranum sem fór í Sálarbol og fékk óvænta gistingu. Baldur hringir í gerfigreindina og fær hana til að skipuleggja fyrir sig sólóferð til Danmerkur, Einar útskýrir af hverju Jón Gnarr er í raun og veru svona flughræddur. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar eru sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Jul 31
1 hr 5 min

Menn eins og við #19 "Baldur splæsir" Í þessum þætti velta Baldur og Einar fyrir sér feimninni við að rukka vini sína og þessari eilífu spurningu um hver borgar hvað. AUR segir „splitta og rukka" og öpp eins og Splitwise, Tricount og Revolut eiga að hafa leyst vandamálið – en rannsóknir sýna að okkur finnst samt merkilega óþægilegt að rukka vini okkar. En gilda sömu lögmál þegar Baldur hoppar reglulega upp á stól, slær út höndunum og tilkynnir hátt og snjallt: „ÉG SPLÆSI!"? Hvenær á að rukka, hvað má upphæðin vera lítil og hvað þýðir eiginlega „ég tek þetta næst"? Að venju fá hversdagsleg vandamál miðaldra karla óþarflega mikla athygli, góð ráð eru gefin án ábyrgðar og umræðan endar einhvers staðar allt annars staðar en lagt var upp með. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli… en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Jul 24
1 hr 19 min

Hvernig kennir maður notkun startkapla í gegnum síma án þess að valda slysi? Baldur reynir það – með misjöfnum árangri. Sláturóbótinn reynir á þolinmæðina og Einar reynir á móti að kenna Baldri hvernig á að velja almennilegt kaffi. Að venju fara umræðurnar víða þar sem hversdagsleg vandamál miðaldra karla fá óþarflega mikla athygli. Góð ráð eru gefin án ábyrgðar og niðurstöðurnar verða sjaldnast þær sem nokkur bjóst við. Allt það sem skiptir nákvæmlega engu máli... en er samt ótrúlega mikilvægt. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Jul 18
1 hr 14 min

Í nýjasta þætti Menn eins og við taka Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir mikilvægustu spurningar sumarsins. Hvenær verður brúnkan að hinu alræmda Mandarin Flare? Eiga miðaldra karlar að fara í hand- og fótsnyrtingu? Og hvernig gengur 54 ára karlmanni að hætta loksins að naga á sér neglurnar eftir áratuga baráttu? Eins og svo oft áður fara umræðurnar víða, með tilheyrandi vandræðagangi og sjálfsháði sem aðeins menn á miðjum aldri virðast kunna. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is
Jul 10
1 hr 22 min

Í þessum þætti fagna Einar og Baldur fyrsta gróðurhúsinu frá BK Hönnun í garði Baldurs – en ný garðslanga stelur senunni og kveikir líklega fyrsta skráða tilfelli garðslönguöfundar á Íslandi. Þeir fara yfir Bergmál, umferðina yfir á Þingvelli, Skinny jeans-sjokkið þegar Just Björn mætti í þeim og af hverju Levi's 501 Loose Fit varð eina rétta svarið. Einnig ber á góma sextugsafmæli Stefáns Hilmarssonar, barnaafmæli að hætti Ásgeirs Kolbeinssonar og ýmislegt annað sem getur með engu móti bætt líf þitt – en gæti samt gert daginn aðeins skemmtilegri. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is
Jun 30
1 hr 8 min

Í þætti #15 af Menn eins og við velta þeir Einar Bárðarson og Baldur Rafn Gylfason fyrir sér öllum þeim spurningum sem miðaldra menn eru ekkert endilega stoltir af að spyrja upphátt. Bergmál og KALEO á Þingvöllum eru framundan og þeir félagar reyna að komast að því hvað menn eins og þeir eigi eiginlega að vera í, hvort einhver fari enn í skinny jeans, hvað þessir margumtöluðu gullmiðar raunverulega þýða og hvort það sé yfirhöfuð hægt að treysta íslenskri veðurspá þegar stórir útitónleikar eru annars vegar. Þá fara þeir einnig yfir frábæra tónleika Friðriks Dórs, ræða sumarið, tónleika, stemningu og þá staðreynd að það getur tekið furðu stuttan tíma að murka lífsviljann úr miðaldra mönnum í biðröðum eftir candyflossi, blöðrum og andlitsmálningu á 17. júní í Garðabæ. Létt spjall um tónleika, karlmennsku, sumarstemningu og allt það sem enginn kenndi okkur að vita þegar við urðum fullorðnir. Aðalbakhjarlar Menn eins og við http://bkhonnun.is http://hertzlangtimaleiga.is http://kolski.is http://bpro.is Samstarfsaðilar Menn eins og við http://biobu.is http://egc.is/ http://mammaveitbest.is http://fylgifiskar.is http://kjotburid.is http://heilsuhornid http://heilsuhornid/>.is http://goa.is www.ccep.is
Jun 20
53 min
Load more
