Ein Pæling
Ein Pæling
Thorarinn Hjartarson
#141 Netöryggi, upplýsingastríð og gervigreind (viðtal við Guðmund Arnar Sigmundsson)
38 minutes Posted May 4, 2022 at 10:00 am.
0:00
38:11
Download MP3
Show notes
Guðmundur Arnar er sviðsstjóri CERT-IS, netöryggissveitar Fjarskiptastofu sem vinnur náið með almannavörnum við að verja Ísland fyrir netárásum. Hér ræðir Þórarinn við Guðmund um álitamál sem að snúa að netöryggi. Hvaða áhrif hefur stríðið í Úkraínu á varnir Íslands? Er Ísland í verri eða betri stöðu en önnur ríki? Er líklegt að netárásir muni færast í aukana vegna ástandsins? Hvað með upplýsingaöryggi einstaklinga? Hvernig er hægt að nota upplýsingar gegn okkur, hvernig nýta hakkarar sér vankunnáttu almennings og hvernig er hægt að koma í veg fyrir að verða fyrir netárás? Að lokum er rætt um áhrif gervigreindar og heimspekileg álitamál sem snúa að því hvort það sé jákvætt eða neikvætt að öfl á borð við Anonymous ryðji sér til rúms. Öfl sem lúta ekki ríkisvaldi.