
Í þættinum í dag er fjallað um ADHD og nám. Fjallað um trix og tól sem hafa nýst einstaklingum með ADHD til að ná betri tökum námi og námsskipulagi. Vilt þú senda inn hugmynd inn í Dótakassann?Hámarksárangur í námi með ADHD
Dec 10, 2021
27 min

Í þættinum í dag er fjallað um ADHD. Fjallað er um helstu hugtök og pælingar sem oft koma til tals í kringum ADHD og þegar fólk er að velta því fyrir sér hvort það sé með ADHD. Hvað er ADHD? Hvaða áhrif hefur það á fólk? Tenglar:Ertu með hugmynd að efni fyrir Dótakassann?ADHD samtökinLífið með ADHD
Oct 19, 2021
27 min

Í þættinum í dag er fjallað um hversvegna gott getur verið að setja sér markmið og hvernig hægt er að brjóta stór markmið upp í lítil skref og ná þannig aukinni færni og betri árangri í því sem við erum að fást við. Tenglar á efni sem tengjast efni þáttarins:- Að setja sér markmið- SMART markmið- Markmiðsetning
Oct 5, 2021
23 min

Í þættinum í dag er fjallað um að taka stöðuna á sjálfu sér og verkefnunum sem við erum að takast á við. Horfum inn í veturinn. Hvað viljum við gera öðruvísi í vetur en í fyrra og hvernig byrjum við á því að skipuleggja taktíkina hjá okkur og setja okkur í stellingar til að ná þeim markmiðum og áföngum sem við stefnum að.
Aug 20, 2021
20 min

Þessi þáttur er loka þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan. Í þættinum í dag er farið yfir það hvernig við getum gefið af okkur til annara og til samfélgsins. Að gefa af sér hefur margvísleg jákvæð áhrif á okkur sjálf og á aðra og margt sem kemur til greina. Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/
May 6, 2021
11 min

Þessi þáttur er fyrsti þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan. Í þættinum í dag verður fjallað um mikilvægi þess að tengjast öðrum en allar manneskjur eru félagsverur og það er okkur öllum mikilvægt að eiga í góðum og nærandi tengslum við fjölskyldu okkar og vini. Í þættinum er fjallað um hvers vegna þetta er mikilvægt og hvernig við getum haft áhrif á okkur sjálf og samskipti okkar við aðra. Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/
May 6, 2021
9 min

Þessi þáttur er annar þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan. Í þessum hluta er fjallað um mikilvægi hreyfingar. Rætt um hvaða hreyfing er góð og reynum að komast að því hvaða hreyfing hentar best. Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/
May 6, 2021
9 min

Þessi þáttur er þriðji þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan. Í þessum þætti er fjallað um hversu gott það getur verið að veita allskonar hlutum athygli. Hvernig við getum æft okkur í því að taka eftir jákvæðum og uppbyggilegum hlutum í kringum okkur og rætt um hvaða áhrif það getur haft á lífið okkar og það hvernig okkur líður. Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/
May 6, 2021
11 min

Þessi þáttur er fjórði þátturinn af fimm um fimm leiðir að vellíðan. Í þættinum í dag er farið yfir hvers vegna það er góð hugmynd að leyfa sér að læra eitthvað nýtt út lífið. Að vera forvitin og læra eitthvað nýtt hefur margskyns jákvæð áhrif á heilsu og líðan og flestir hafa áhuga á að prófa eitthvað nýtt eða læra eitthvað sem þeir hafa ekki haft tök á að læra hingað til. https://5leidir.blogspot.com/
May 6, 2021
5 min

Í næstu þáttum veður fjallað um 5 leiðir að vellíðan. Um er að ræða fimm mikilvæga þætti sem hafa áhrif á heilsu okkar og líðan. Verkefni tengd þættinum má finna hér: https://5leidir.blogspot.com/
May 6, 2021
5 min
Load more
