Deiglan Podcast

Deiglan

Þórlindur Kjartansson
Radíó Deiglan hefur komið út með óreglulegum hætti frá árinu 2013. Í hlaðvarpinu koma einkum fram Deiglupennar og ræða hugðarefni sín sem snúa að flestu milli himins og jarðar.
Radíó Deiglan 2021_06 – Á undan sinni framtíð
Ræða álitamál sem upp hafa komið í skrifum á Deiglunni síðustu vikuna. Meðal annars fara þeir yfir ýmis konar erindisrekstur sem úthverfafólk þarf að sækja í miðborgina og rifja upp framsýnan pistil stofnandans. Í lokin bjóða þeir upp á ráðgjafaþjónustu fyrir þá hlustendur sem hafa áhuga á því að gerast aðdáendur hafnaboltans.
Apr 11, 2021
44 min
Radíó Deiglan 2021_05 Grímulaus æska
Einu mennirnir með viti ræða um jarðhræringar og sóttvarnir eins og allir landsmenn. En þar að auki er rætt ástandið á gamalli Ford-bifreið sem þarf á meiri spennu að halda í tilveru sína, annars gæti illa farið.
Feb 28, 2021
29 min
Radíó Deiglan 2021_04-Brave New World
Hafsteinn Gunnar Hauksson og Þórlindur Kjartansson spjalla saman um hugleiðslu, vímuefni, fíkniefni og bókina Brave New World. Bara svona eins og fólk gerir í hádeginu á laugardögum.
Feb 21, 2021
34 min
Radíó Deiglan 2021_03-Meiri loftgæði
Einu mennirnir með viti fjalla áfram um raka og loftgæði. Borgar Þór býður upp á nýja þjónustu sem stendur eingöngu til boða á Seltjarnarnesi. Þeir rifja upp dagana þegar veik von um bólusetningu þjóðarinnar varð að algjörri fullvissu. Að lokum er farið ýmis áhugaverð atriði í tengslum við körfuboltadómgæslu, en Þórlindur átti fyrir höndum tvo leiki síðar um daginn.
Feb 14, 2021
39 min
Radíó Deiglan 2021_2 – Kjötsúpa
Einu mennirnir með viti halda áfram rannsóknum á rakastigi og fjalla um þann leyndarhjúp sem virðist vera um raunverulegt ástand raka á landinu. Þeir ræða um mögulegan forystumann í málefnum Reykjavíkurborgar. Stærstur hluti þáttarins fer þó í að ræða háþróaðar aðferðir Borgars Þórs í kjötsúpugerð.
Jan 31, 2021
49 min
Radíó Deiglan 2021_01 – Loftgæði
Einu mennirnir með viti heilsa nýju ári og halda upp á afmæli tveggja ritstjóra við erfið en batnandi loftgæði á 8. hæð við Austurströnd. Eftir ítarlega umfjöllun um margvíslegar lausnir í þeim efnum fara þeir stuttlega yfir helstu málefni samtímans, faraldurinn og valdaskiptin í Bandaríkjunum. Og Diego Maradona kemur við sögu.
Jan 17, 2021
53 min
Radío Deiglan 20_23 Stjörnufræði og speki, faraldsfræði og speki
Í síðasta þætti Radíó Deiglunnar árið 2020, og þeim 23., ræða Einu mennirnir með viti® um daginn, nóttina, veginn og vegaleysur. Fjallað er um sóttvarnalimrur sem gætu komið í stað opinberra sóttvarnaráðstafana og í framhaldinu um verndarhagsmuni sóttvarna- og umferðarlaga. Einnig er tæpt á því helsta sem fram fór á jólaglögg Deiglunnar 2020. Gerast áskrifandi á Spotify.
Dec 27, 2020
1 hr
Radíó Deiglan 20_22-Maradona með meiru
Í 22. þætti Radíó Deiglunnar á þessu ári spjalla Einu mennirnir með viti saman um átrúnaðargoðið Diego Armando Maradona og fara yfir fjölbreytt pistlaskrif á Deiglunni síðustu tvær vikur.
Dec 6, 2020
1 hr 13 min
Radíó Deiglan 20_21—Pistlar vikunnar
Einu mennirnir með viti fara yfir blómleg pistlaskrif á Deiglunni í liðinni viku. Þar gætti ýmissa grasa og gáfu skrif vikunnar tilefni til margvíslegra vangaveltna.
Nov 22, 2020
52 min
Radíó Deiglan 20_20 – Heilinn
Davíð Guðjónsson og Þórlindur Kjartansson tala saman um heilann og mikilvægi félagslegra tengsla fyrir manninn. Maður er jú manns gaman. En á tímum covid þá er fólki kennt að forðast hvert annað og jafnvel hræðast, og ungt fólk sem elst upp við þessar aðstæður gæti misst af tækifærum til að mynda ómetanleg vinabönd, eins og þeir félagarnir gerðu þegar þeir kynntust í menntaskóla.
Oct 25, 2020
1 hr 3 min