
Hlynur Höskuldsson Bráðatæknir, sagði frá þjálfun Úkraínskra hermanna sem slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur komið að síðan í maí 2023.
Oct 21, 2023
10 min

Bráðavarpið var á EMS2022 í Glasgow. Í þættinum fáum við örlitla innsýni í það hvað er um að vera á svona ráðstefnum og fáum létta leiðsögn um sýningarsvæðið á hvað þar fyrir augu ber.
May 24, 2022
37 min

Bráðavarpið er á EMS 2022 í Glasgow í Skotlandi. Í þessum þætti fengium við þá Arnar Pál Gíslason bráðatækni og nýjan formann fagdeildar sjúkraflutningamanna og Sverri Örn Jónsson bráðatækni til þess að fara yfir atburði dagsins með okkur.
May 4, 2022
35 min

Aldís Arna Tryggvadóttir streituráðgjafi kom til okkar í Bráðavarpið og fræddi okkur um streitu, hver eru einkenni streitu, hvað er hægt að gera í henni og allt þar á milli.
Bráðavarpið er styrkt af landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna.
Sendið okkur endilega póst á [email protected] ef þið hafið hugmynd af umfjöllunar efni sem Bráðavarpið ætti að taka fyrir! Eins getið þið sent okkur skilaboð á Instagram og Facebook @bradavarpid.
Jan 20, 2022
49 min

Brad Newbury, bráðatæknir og eigandi National Medical Education and Training Center, kom í spjall í Bráðavarpið.
Brad Hélt fyrirlestur um erfiðar ákvarðanir, á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland sem haldin var dagana 22. og 23. október.
við fengum Brad til þess að setjast niður með okkur og segja okkur í stuttu máli um hvað fyrirlestur hans fjallaði og einnig sagði Brad okkur frá skólanum sem hann rekur í Boston.
Oct 23, 2021
25 min

Tómas Guðbjartsson hjarta og lungnaskurðlæknir hélt áhugaverðan fyrirlestur á námsstefnunni Á vakt fyrir Ísland, sem haldin er að Landssambandi slökkviliðs og sjúkraflutningamanna á dögunum.
Þar ræddi Tómas um meðferð hníf og skotáverka á Íslandi.
Við fengum Tómas til þess að setjast niður með okkur í Bráðavarpinu og segja okkur frá fyrirlestrinum og fleira!
Oct 23, 2021
47 min

Sigríður B. Þormar, Sálfræðingur og hjúkrunarfræðingur kom í spjall til okkar og fór yfir það hvernig gott væri að nálgast aðstandendur og aðkomendur að slysum og eða alvarlegum veikindum.
Þátturinn er eins og venjulega í samstarfi við Landssamband slökkviliðs og sjúkraflutningamanna.
Við minnum á námsstefnuna ,,Á vakt fyrir Ísland" sem fer fram dagana 22 og 23 Október næst komandi. Skráning á lsos.is
Oct 8, 2021
38 min

Már Kristjánsson Yfirlæknir á A7 smitsjúkdómadeild LSH og yfirmaður farsóttarnefndar LSH var gestur Bráðavarpsins í dag.
Már kom til okkar í spjall í janúar 2020 og fannst okkur rétt að taka spjallið aftur, nú rúmu einu og hálfu ári síðar.
Sep 27, 2021
35 min

Heimilsofbeldi er málefni sem þarf að ræða opinskátt. Til þess fengum við þær Drífu Jónasdóttur og Erlu Sigríði Sigurðardóttur í Bráðavarpið. Þær hafa hvor á sínu sviði kafað ofan í málin og deila hér með okkur sinni reynsu, þekkingu of sýn á hvernig heilbrigðisstarfsfólk ætti að nálgast verkefnið sem er heimilsofbeldi.
Hér er linkur á skýrslu Drífu sem rædd er í þættinum:
https://www.stjornarradid.is/library/04-Raduneytin/Heilbrigdisraduneytid/ymsar-skrar/Sk%c3%bdrsla%20Dr%c3%adfu%20J%c3%b3nasd%c3%b3ttur%20um%20verklag%20%c3%ad%20heilbrig%c3%b0is%c3%bej%c3%b3nustu%20vi%c3%b0%20m%c3%b3tt%c3%b6ku%20%c3%beolenda%20heimilisofbeldis_27.8.2021%20(004).pdf?fbclid=IwAR2j8jekS294A9w6AUm90pyVfVKZXU-E7wyC9bhSq225KcwFI54Szy3723A
Sep 3, 2021
51 min

Svandís Svavarsdóttir Heilbrigðisráðherra mætti í spjall í Bráðavarpið og fór yfir skýrslu starfshóps um framtíðarsýn í sjúkraflutningum og bráðaþjónustu til árins 2030.
Málefni bráðaþjónustunnar eru ráðherra greinilega hugleikin og því mjög gaman að ræða þessa hluti við hana!
Virkilega áhuga vert spjall sem er vel þess virði að hluta á!
Aug 23, 2021
24 min
Load more
