
Í þessum frábæra jólaþætti spjöllum við um margt skemmtilegt sem tengist bókum og jólum! En auk þess sem þetta er síðasti þátturinn fyrir jól er þetta líka síðasti þátturinn í þáttaröðinni. Þórey og Þorgerður skila jólakveðju til allra hlustenda Bókaklúbbsins og við vonum að allir muni njóta hátíðanna sem best :)
Dec 19, 2021
14 min

Í þessum 19. Þætti af Bókaklúbbnum tökum við frjálslegt og opið spjall um dagbækur. Bæði skáldaðar og raunverulegar.
Dec 12, 2021
12 min

Í þessum átjánda þætti af Bókaklúbbnum fjalla Þórey María og Þorgerður Erla um íslenskar þjóðsögur. Sagt verður frá hinum ýmsu áhugaverðu staðreyndum um þær!
Nov 28, 2021
9 min

Í þessum dularfulla þætti af Bókaklúbbnum munum við fara yfir dularfullar bóka/handrits ráðgátur sem sérfræðingar eru á fullu að reyna að leysa enn þann dag í dag. Forvitnin er svakaleg og áhuginn svo sannarlega á sínum stað á meðal þáttastjórnenda í þættinum.
Nov 20, 2021
9 min

Í þessum sextánda þætti af Bókaklúbbnum fá hlustendur að kynnast bókaflokknum um hana Nikký eftir Brynju Sif Skúladóttur. En það eru samtals þrjár bækur í þeim snilldarlega bókaflokki.
Nov 15, 2021
7 min

Í þessum fimmtánda þætti af Bókaklúbbnum spjalla vinkonurnar um bækur sem hafa verið bannaðar í gegnum tíðina, já þið heyrðuð rétt, BANNAÐAR!!! Þetta er erfitt en þó áhugavert umræðuefni og hvetjum við alla til að hlusta á þennan þátt.
Nov 7, 2021
9 min

Í þessum fjórtánda þætti af Bókaklúbbnum taka Þórey og Þorgerður gott spjall um ævintýri, hvað þau eru og hverju þau byggjast á. Einnig munu hlustendur fá að vita hver uppáhaldsævintýri vinkvennanna eru og margt fleira.
Oct 29, 2021
7 min

Í þessum þrettánda þætti af Bókaklúbbnum munu vinkonurnar segja hlustendum 10 staðreyndir um bækur! Þetta eru allt brjálæðislega vel valdnar staðreyndir sem klikka aldrei.
Oct 22, 2021
8 min

Í þessum kynningarþætti fara þær Þórey María og Þorgerður Erla yfir hvað verður gert í annarri þáttaröðinni af Bókaklúbbnum.
Oct 22, 2021
1 min

Í þessum ellefta og síðasta þætti í fyrstu þáttaröðinni af Bókaklúbbbum verða TVÆR bókaumræður en einnig munum við fara yfir sigurvegara spurningakeppninnar sem var haldin á instagramminu okkar.
May 24, 2021
18 min
Load more
