
Forseta- og þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum í næstu viku. Enn sem komið er mælist Joe Biden með betri sigurlíkur en Donald Trump.
Oct 30, 2020
32 min

Donald Trump mætti Joe Biden í kappræðum í nótt. Minna en tvær vikur eru nú til kosninga.
Oct 23, 2020
27 min

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, smitaðist af Covid-19 og Mike Pence, varaforseti, mætti Kamölu Harris, varaforsetaframbjóðanda í kappræðum.
Oct 9, 2020
28 min

Donald Trump og Joe Biden mættust á sviði í fyrsta sinn. Úr urðu heldur óhefðbundnar kappræður.
Oct 1, 2020
25 min

Dauði hæstaréttardómarans Ruth Bader Ginsburg mun hafa mikil áhrif á kosningarnar í nóvember og Bandaríkin sjálf næstu áratugina.
Sep 24, 2020
26 min

Það styttist óðum í forsetakosningar í Bandaríkjunum og loksins hefur okkur tekist að taka upp nýjan þátt eftir langar tafir sem má að mestu rekja til heimsfaraldurs nýju kórónuveirunnar.
Sep 18, 2020
34 min

Í þessum fjórða þætti Bandaríkjanna förum við yfir nýjustu vendingar í forvali Demókrataflokksins, þar sem Joe Biden er svo til gott sem búinn að tryggja sér tilnefningu flokksins. Einnig verður farið yfir aðrar vendingar í stjórnmálum vestanhafs og möguleg áhrif kórónuveirunnar á forsetakkosningarnar í nóvember.
Mar 12, 2020
24 min

Hlaðvarp fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar um bandarísk stjórnmál.
Feb 7, 2020
31 min

Í þessum öðrum þætti Bandaríkjanna er farið yfir sigurstranglegustu frambjóðendur Demókrata. Joe Biden, Elizabeth Warren, Bernie Sanders og Pete Buttigieg njóta töluverðs stuðnings og þykir líklegast að einhvert þeirra keppi gegn Trump á næsta ári. Einnig verður litið til nokkurra frambjóðenda sem hefur ekki gengið alveg jafnvel.
Dec 10, 2019
49 min

Í þessum fyrsta þætti Bandaríkjanna er farið yfir yfir rannsókn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings á þeim þrýstingi sem Donald Trump forseti er sagður hafa beitt úkraínsk stjórnvöld í því skyni að fá þarlend yfirvöld til þess að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing forsetans. Einnig er litið til annarra áhugaverðra frétta af forsetanum undanfarna daga.
Nov 21, 2019
41 min
