Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
Áttavitinn - Ferðafélag Íslands
Pixelmedia
Áttaviti Ferðafélags Íslands. Fyrir allt áhugafólk um útivist og fjallamennsku.
11 - Ólafur Örn Haraldsson forseti FÍ
Gestur þáttarins í dag er Ólafur Örn Haraldsson forseti Ferðafélags Íslands. Ólafur er með masterpróf frá Englandi í skipulagi byggða og bæja og BA-próf í sögu- og jarðfræði frá Háskóla Íslands. Ólafur er fyrrverandi alþingismaður en hann sat á þingi frá árinu 1995-2003. Og Ólafur var einnig Þjóðgarðsvörður Þingvalla frá árinu 2010-2017.Ólafur hefur ferðast víða og stundað fjallamennsku vítt og breitt um heiminn og klifið mörg háfjöll m.a. Mont Blanc, Kilimanjaro og Aconcagua hæsta fjall Suður Ameríku.Ólafur er brautryðjandi í íslenskri fjallamennsku, hann var m.a. í fyrstu skíðaleiðangrum Íslendinga yfir Grænlandsjökul og á Suðurpólinn.
Nov 19, 2018
52 min
10 - Næring á fjöllum
Umræðuefni þáttarins er næring á fjöllum. Viðmælendur eru Anna Sigríður Ólafsdóttir, Auður Elva Kjartansdóttir og John Snorri Sigurjónsson. Öll hafa þau mikla reynslu af næringu og tengingu næringar og árangurs á fjöllum. Í þættinum er farið máltíðir, skipulagningu og samsetningu máltíða, orkuþörk, vökvastjórnun ofl.
Oct 15, 2018
1 hr 7 min
09 - Jóhann Kári Ívarsson - Gekk reglulega 22km til að komast í sturtu
Gestur þáttarins er Jóhann Kári Ívarsson skálavörður í einum afskekktasta skála ferðafélagsins, Hrafntinnuskeri sem er í um 1.100m hæð. Jóhann hefur starfað sem skálavörður síðan 2012 þar af lengstum í Hrafntinnuskeri. Í viðtalinu förum við yfir lífið á hálendi Íslands með þeim ævintýrum og áskorunum sem því fylgir og þróun mála í Hrafntinnuskeri, til dæmis segir Jóhann frá því hvernig hann gekk reglulega um 22 kílómetra leið til að komast í sturtu. Jóhann er einnig einn af umsjónarmönnum Ferðafélags Unga fólksins og ferðast vítt og breitt um landið með unga fólkinu í FÍ.
Aug 21, 2018
32 min
08 - Halldór Hafdal Halldórsson - Vitavörður FÍ og lífið á fjöllum
Dóri er einn af þúsundþjalasmiðum Ferðafélags Íslands. Hann segir hér m.a. söguna um hvernig hann var hætt kominn þegar hann féll útbyrðis á sjó um hávetur og hvernig reiðhjólakaup á netinu opnuðu leið fyrir hann í vitavörslu í Hornbjargsvita.
Jul 30, 2018
30 min
07 - Sigrún Valbergsdóttir - Ferðanefnd og úrval ferða hjá F.Í.
Það finna allir eitthvað fyrir sig í ferðaáætlun FÍ. Úrval ferða er gífurlega mikið, allt frá léttum ferðum yfir í mjög krefjandi ferðir auk talsverðra nýjunga. Má þar meðal nefna fjallaskíðaferðir sem hafa verið kærkomin og vinsæl viðbót við úrval ferða FÍ
Jul 12, 2018
34 min
06 - Sigríður Lóa - Njótum ferðalagsins
Gestur þáttarins að þessu sinni er fararstjórinn og sálfræðingurinn Sigríður Lóa. Hún hvetur okkur að njóta ferðlagsins og gleyma ekki að gefa okkur tíma til að njóta augnabliksins. Sigríður Lóa minnir okkur einnig á mikilvægi hreyfingar í baráttunni gegn algengra lýðheilsusjúkdóma á borð við þunglyndi og kvíða.
Jun 28, 2018
47 min
05 - Páll Guðmundsson - Ferðafélag Íslands
Gestur þáttarins í dag er Páll Guðmundsson framkvæmdastjóri Ferðafélags Íslands. Ferðafélagið er áhugamannafélag með 8.000 félaga, með öfluga ferðáætlun árlega og rekur skála víðsvegar um hálendi Íslands.
Jun 14, 2018
43 min
04 - Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson - Fjallaskíði
Helgi Jóhannesson og Tómas Guðbjartsson eru miklir áhugamenn um fjallaskíðamennsku og settust niður með okkur og fræddu um þessa frábæru útivist sem fjallaskíðamennskan er.
May 11, 2018
34 min
03 - Hjalti Björnsson - Fjallavit, öryggi á fjöllum og umhverfið
Gestur okkar í dag er Hjalti Björnsson. Hann fer hér yfir þau mikilvægu grunnatriði sem fólk þarf að hafa í huga við útivist, hvað varðar eigið öryggi og annara og einnig hvernig er best að bera sig að við að koma sér af stað í göngu- og fjallamennsku.
Apr 29, 2018
43 min
02- Dalla og Matti - Ferðafélag barnanna
Hér er rætt við Döllu og Matta, umsjónarmenn Ferðafélags barnanna. Það sem gerir ferðir með ferðafélagi barnanna sérstakar eru að þær eru farnar á forsendum barnanna og sniðnar að þörfum þeirra.
Apr 15, 2018
42 min
Load more