Athyglisbrestur á lokastigi
Athyglisbrestur á lokastigi
Útvarp 101
https://www.patreon.com/athyglisbrestur Athyglisbrestur á lokastigi er vikulegur hlaðvarpsþáttur um þjóðfélagsmál, poppmenningu og samtímann útfrá sjónarhorni tveggja kvenna sem komnar eru yfir 23 ára aldurinn en eru ekki ennþá orðnar þrítugar sem þýðir að þær vita allt best og eru ennþá...heitar? Salvör Gullbrá og Lóa Björk eru sviðslistakonur, grínistar og sérfræðingar í poppkúltúr.
Lokastig á Athyglisbresti
Mar 5, 2022
1 hr 18 min
Handboltaherrarnir, Euphoria og meint endurkoma á Twitter
„Mig langar að Men in Black gaurarnir komi með ljósið og láti mig gleyma öllu sem gerðist eftir árið 2011, sem var árið sem ég fékk mér Twitter“ - Lóa Eru liðsmenn íslenska handboltalandsliðsins heitustu menn í heimi? Er Þórir Sæm kominn aftur á Twittter? Hverju má búast við í nýrri seríu af Euphoria? Þetta og fleira til umfjöllunar í þessum þætti, sem tekinn var upp 21.janúar og hefði komið inn fyrr ef athyglisbrests-lyfið Elvanse hefði ekki allt í einu orðið ófáanlegt svo vikum skipti í lok janúar. Umfjöllunarefni hans eru þ.a.l. vintage en samt ekkert svo! Njótið!
Feb 13, 2022
1 hr 8 min
Hundraðasta podcastið sem Helgu Brögu er boðið í
Helga Braga hefur bókstaflega gert allt: Skrifað og leikið í Fóstbræðrum, leiðsagt túristum á rútu, átt kommbakk á leikhúsfjölunum, skartað pappabrjóstum á fyrsta uppistands-gigginu á félagsheimili í Borgarfirði, og farið í burnout löngu áður en það var í tísku. Stelpurnar nutu þess í botn að tala við þessa algjöru drottningu sem elskar að vera í "einhverju skrýtnu", enda mætti hún í þennan þátt. Elskum ykkur babylotion, njótið vel!
Feb 13, 2022
1 hr 16 min
Bassi Maraj tell all þátturinn
Rapparinn og raunveruleikastjarnan Bassi Maraj... Hver er hann í raun og veru? Hlustendur fá að skyggnast bakvið tjöldin í raunveruleikaþættinum Æði, heyra hvaða Bassa fannst um Lóu þegar hann hitti hana fyrst og komast að því hver framtíðarplön Bassa eru. Bassi rekur það hvernig það var að fara í hlaðvarpsþáttinn Karlmennskan og hvaða afleiðingar það hafði fyrir hann.
Jan 31, 2022
1 hr 17 min
Saga Garðarsdóttir: Ástin og leigumarkaðurinn, viral rassamynd og Spænska veikin
Rassamyndir á Tene, að lenda í því að það sé hrækt framan í mann (sérstaklega ef manneskja með fjölþættan fíknivanda á í hlut) og að vera ein af fyrstu manneskjum á Íslandi með Pod. Þetta eru þau mál sem voru efst á baugi í þessum nýja þætti af Athyglisbresti á Lokastigi. Saga Garðars er svo fyndin og skemmtileg að þetta er must listen og share with friends kind of episode. Saga Garðarsdóttir er ekki bara geggjuð leikkona og grínisti heldur er hún líka podcast frumkvöðull á Íslandi, en hún stýrði þættinum Ástin og leigumarkaðurinn ásamt vinkonu sinni Uglu Egils.
Jan 20, 2022
1 hr 42 min
árið er... '22?
Fyrsti þáttur ársins og þáttastjórnendur leggja spilin á borðið. Hvernig verður þetta ár? Hverjar eru lexíur ársins 2021? Við ræðum undarlegt blogg leikkonunnar Juliu Fox sem fjallar um stefnumót hennar við Ye. Nýju uppáhalds þættina okkar, Verbúðina, og svo margt fleira í þessum stórkostlega þætti í fullri lengd.
Jan 12, 2022
1 hr 10 min
The Family Athyglisbrestur(með Ásdísi Maríu og Hjalta Vigfússyni)
Hér er Athyglisbrests-þáttur sem ber nafn með rentu, en til þess að hringja inn hátíðarnar fengum við sanna regulars í þáttinn: Engin önnur en þau Hjalta Vigfússon og Ásdísi Maríu Viðarsdóttur, enda fá önnur sem geta látið okkur hlæja jafn mikið og á sama tíma gert okkur jafn brjáluð í skapinu <3 Við ræðum einn lélegasta þátt sem gerður hefur verið(spoiler: Það er "And just like that"), plönum áramótapartý með besta þema í heimi, þrætum um hvort Reykjavík sökki eða ekki og förum í svona þúsund hlátursköst auk þess að missa þráðinn um það bil trilljón sinnum. Sönn fjölskyldustund! Næsti þáttur verður eftir jólafrí, við óskum hlustendum gleðilegra jóla með miklu þakklæti fyrir hlustunina á þessu ári - þið eruð best!
Dec 20, 2021
1 hr 21 min
Þú ert Kendall Roy
#JeSuisKendallRoy
Dec 14, 2021
55 min
Sendið okkur í útlegð
Þær eru komnar aftur - og þær eru í góðu jafnvægi. SEitthvað extra wholesome þáttur í dag - stelpurnar tóku upp þátt eftir að síðasti þáttur hvarf út í himingeima, þeim líður vel og eru uppfullar af bjartsýni þrátt fyrir að lýðræðið sé blekking - semsagt já, við ræðum nýja ríkisstjórn, þakkargjörðarbæn Kanye West, jólin(edgy) og hvað okkur langar í jólagjöf frá vinnustaðnum okkar (sumsé ykkur - spoiler: Lóu finnst Sölku vanta flotta úlpu). Takk fyrir biðina kæru hlustendur, nú birtir loks til í tækni- og tímamálum. xx
Dec 4, 2021
1 hr 3 min
Ekki veipa of mikið
Uppistandið, mömmu-retreatið, ný sería af Morning Show, brúðkaup Paris Hilton, Succession (og sú óumdeilanlega staðreynd að Tom er aðalpersónan), Fortuna Invest og tími andhetjunnar. Stelpurnar eru solo í þætti vikunnar og living.
Nov 23, 2021
1 hr 7 min
Load more