Alveg Dagsatt
Alveg Dagsatt
Hljóðkirkjan
Dagur Gunnarsson skiptist á sögum við fólk... ein saga leiðir til næstu sögu.
#10 Guðrún Helga Tómasdóttir
Guðrún Helga Tómasdóttir segir frá afspyrnulélegum smekk sínum á körlum. Það komu margar skondnar sögur af samskiptum hennar við hitt kynið og Dagur segir frá Viagraneyslu sinni og hvernig það er að koma nakinn fram.
May 2, 2021
1 hr 2 min
#9 Guðný Halldórsdóttir
Guðný Halldórsdóttir kallar ekki allt ömmu sína, hún hefur lagt gjörfa hönd á margar kvikmyndir og í þessum þætti skiptast þau Dagur á sögum sem tengjast kvikmyndabransanum, fiskvinnslu og fleira. Þau hafa bæði búið í Svíþjóð og London og hafa rekist á undarlegt fólk á flækingi sínum, forðast sprengjur Írska lýðveldishersins og fleira og fleira.
Apr 25, 2021
1 hr 11 min
#8 Lóa Hjálmtýsdóttir
Lóa Hjálmtýsdóttir er listakona, teiknari, rithöfundur og hljómsveitatýpa. Hún segir okkur tvær útgáfur af sömu sögunni af dauða kattar. Önnur er sönn en hin er lygi. Dagur segir margtuggna pylsusögu og ljóstrar upp um áður óleystan glæp í Kringlunni.
Apr 18, 2021
1 hr 30 min
#7 Rósa María Hjörvar
Rósa María Hjörvar stundar doktorsnám í bókmenntafræðum við Háskóla Íslands, hún hefur dvalið helming ævinnar í Danmörku og á nokkrar góðar sögur frá þeim árum. Hún getur spilað keilubilljard með lokuð augun og kann óbrigðult ráð til að sjá hvort unglingapartý hafi átt sér stað. Dagur segir frá húsgagnaviðgerðum eftir partý og hvernig hann fékk titilinn Guðfaðirinn.
Apr 11, 2021
1 hr 12 min
#6 Huld Óskarsdóttir
Huld Óskarsdóttir hefur ólæknandi áhuga á tölfræði og leiklist. Hún er sálfræðimenntuð og starfar á auglýsingastofu og eftir að hafa heyrt hana skiptast á sögum við Dag Gunnarsson er ljóst að hún er ofurkvendi sem getur allt. Leigubílstjórar í Kaupmannahöfn lækka róminn og fyllast lotningu ef minnst er á Huld. Dagur segir tröllasögu úr leikhúsinu og stóra sælgætissvindlinu.
Apr 4, 2021
1 hr 8 min
#5 Arndís Ásgeirsdóttir
Arndís Ásgeirsdóttir er tónlistarkennari, þáttagerðarkona og íhlaupaþulur á Rás 1. Arndís hefur alið manninn bæði í sveit og borg með tónlistarmenntun frá bæði Frakklandi og Tékklandi og kann tökin á að segja skemmtilegar sögur.
Mar 28, 2021
1 hr 6 min
#4 Ása Marin
Ása Marin er rithöfundur og heimshornaflakkari sem mætir hér til leiks með sprengfullan sagnasarp. Hún skiptist á sögum við Dag og flissar eins og enginn sé morgundagurinn.
Mar 21, 2021
1 hr 1 min
#3 Þórdís Gísladóttir
Þórdís Gísladóttir, skáld, rithöfundur og þýðandi berst hetjulega gegn einkabílnum á samfélagsmiðlum. Hún segir okkur hér frá fyrsta bílnum sínum. Skrautlegri stöðumælasekt og hvernig bananaflugur blandast inn í málið.
Mar 14, 2021
1 hr 12 min
#2 Halldóra Geirharðsdóttir
Halldóra Geirharðsdóttir, leikari, leikstjóri, kvikmyndastjarna, trúður, kennari og stofnmeðlimur í hljómsveitinni Risaeðlunni er viðmælandi þáttarins. Hún er að senda frá sér plötu með hljómsveitinni Látún og í þættinum ræðir hún um árið sem hún hvarf í sértrúarsöfnuð og sú staðreynd hvað Dagur er laglaus og sjúkur í lakkrís ber einnig á góma.
Mar 7, 2021
1 hr 1 min
#1 Kamilla Einarsdóttir
Kamilla Einarsdóttir er bókavörður og rithöfundur sem hefur sent frá sér skáldsöguna Kópavogskrónika – til dóttur minnar með ást og steiktum. Kamilla ræðir við Dag um örbylgjuofna, spindilkúlur, dömubindi, skilorðsfulltrúa og hugulsemi. Dagur segir sögu frá Benidorm.
Mar 7, 2021
1 hr 10 min
Load more