
Hvernig sem á er litið þá má segja að Einar Bárðarson sé maður sem fer ótroðnar slóðir. Hér spjallar hann um tónlistina, verkefnin og litla strákinn sem hafði metnað til að hasla sér völl í tónlistinni. Hann lætur líka Orku náttúrunnar hafa það óþvegið og gefur ekkert eftir þegar kemur að því að verja konuna sína.
Hann telur borgarkerfið hafi sett upp leiksýningu til að hvítþvo sjálfan sig og málaferli eru í gangi.
Apr 7, 2019
44 min

Frosti Sigurjónsson er í réttum bransa. Hann hefur verið virkur þátttakandi í viðskiptalífinu í fjölda ára og á að baki störf og verkefni sem marga dreymir um. Hann snerti líka á pólitík og fór á þing fyrir Framsóknarflokkinn eftir hrun.
Hann barðist fyrir sjálfstæðinu með Advice hópnum þegar Ísland stefndi í Evrópusambandið og sigurinn var þeirra. Íslendingar höfnuðu inngöngu. Hann er alfarið á móti því að við seljum banka og telur að þjóðarsjóðu
Jan 28, 2019
42 min

"Alltaf í röngum bransa" er hlaðvarp sem framleitt er af Litla Frjálsa Hljóðverinu. Í þessum þætti er rætt við Þorgeir Ástvaldsson, landfræðing og útvarpsmann. Þorgeir er ein þekktasti útvarpsmaður og skemmtikraftur landsins og hefur verið daglegur gestur á heimilum landsmanna síðan 1977, þegar hann hóf störf á Ríkisútvarpinu.
Þorgeir segir hér frá lífshlaupi sínu og hvernig tónlistin hefur ofið sig inn í líf hans og fjölskyldu.
May 22, 2018
44 min
