Að eiga mömmu eða pabba með krabba
Að eiga mömmu eða pabba með krabba
RÚV
Þegar Valdimar fékk þær fréttir að pabbi hans hefði greinst með krabbamein, fékk hann þá hugmynd að gera hlaðvarpsþátt til þess að fræða sig og hlustendur um sjúkdóminn og afleiðingar hans. Umsjón: Valdimar Högni Róbertsson.
Fjölskylda Valdimars og staðan í dag
Valdimar spjallar við fjölskylduna sína um afleiðingar krabbameins pabba síns, það sem hjálpaði og hvað mikilvægt sé að hafa í huga fyrir öll þau sem ganga í gegnum krabbameinsveikindi eða veikindi nákomins. Umsjón: Valdimar Högni Róbertsson
Mar 1, 2022
22 min
Formaður Krabbameinsfélagsins og einstök meðferð í Svíþjóð
Valgerður Sigurðardóttir formaður Krabbameinsfélagsins er gestur Valdimars í þættinum í dag. Hún ræðir um tegundir krabbameins, sögu þess og meðferðir. Einnig verður talað við Egil Þór Jónsson sem fór í sérstaka meðferð við sínu krabbameini sem framkvæmd var í Svíþjóð með viðkomu í Bandaríkjunum. Umsjón: Valdimar Högni Róbertsson
Feb 22, 2022
19 min
Afreksíþróttafólk með krabbamein
Þetta er sérstakur íþróttaþáttur þar sem Valdimar ræðir við Mist Edvardsdóttur landsliðskonu í fótbolta og Kára Kristján Kristjánsson landsliðsmann í handbolta. Þau greindust bæði með krabbamein en héldu áfram í íþróttum sem hjálpaði þeim í gegnum veikindin. Umsjón: Valdimar Högni Róbertsson.
Feb 15, 2022
15 min
Ljósið og Krabbameinsfélagið
Valdimar Högni heldur áfram að kynna sér félög á Íslandi sem hjálpa krabbameinssjúklingum og aðstandendum þeirra. Gestir: Helga Jóna Sigurðardóttir frá Ljósinu og Halla Þorvaldsdóttir frá Krabbameinsfélaginu Umsjón: Valdimar Högni Róbertsson
Feb 8, 2022
19 min
Kraftur
Valdimar Högni ræðir við Arnar Svein Geirsson stuðningsfulltrúa hjá Krafti. Umsjón: Valdimar Högni Róbertsson
Feb 1, 2022
18 min
Jakob Jóhannsson krabbameinslæknir og Róbert Jóhannsson (pabbi minn)
Valdimar Högni Róbertsson ræðir við Jakob Jóhannsson krabbameinslækni og pabba sinn Róbert Jóhannsson.
Jan 25, 2022
17 min