Á mannauðsmáli
Á mannauðsmáli
Á mannauðsmáli
Þættirnir fjalla um mannauðsmál í víðu samhengi. Rætt er við mannauðsstjóra, ráðgjafa og aðra sérfræðinga á sviði mannauðsmála þar sem farið er yfir feril viðmælenda og þau verkefni sem verið er að vinna að hverju sinni.
50. Sigrún Ósk Jakobsdóttir - Advania
Gestur þáttarins heitir Sigrún og starfar sem mannauðsstjóri hjá Advania. Sigrún segir okkur frá þeirra helstu áherslum í mannauðsmálum og svo þær áskoranir sem upplýsingatæknifyrirtæki standa frammi fyrir varðandi það að efla konur í þessum geira. Styrktaraðilar þáttarins eru Akademias, Hoobla, YAY, Alfreð, Dagar og Giggó.
Dec 9, 2024
51 min
49. Hildur Hörn Daðadóttir - Lífeyrissjóður verslunarmanna
Gestur þáttarins er Hildur Hörn sem starfar hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna. Við ætlum að spjalla um allt sem tengist lífeyrismálum ig það komum við mannauðsfólk sterk inn. Hildur fer yfir lífeyrismál og við ræðum hvernig lífeyrir getur stutt við okkur í allskonar aðstæðum. Styrktaraðilar eru Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar.
Sep 16, 2024
48 min
48. Davíð Tómas Tómasson - Moodup
Gestur þáttarins heitir Davíð og tók nýlega við sem framkvæmdastjóri Moodup. Davíð er ótrúlega skemmtilegur og hefur mikinn áhuga á andlegri og líkamlegri heilsu ásamt því að brenna fyrir Moodup. Við förum yfir sögu fyrirtækisins sem er svo sannarlega áhugaverð. Styrktaraðilar eru Akademias, Hoobla, YAY, Moodup, Alfreð, Giggó og Dagar.
Aug 16, 2024
52 min
47. Sigríður Inga Svarfdal - YAY
Jæja gott fólk. Gestur þáttarins er Sigga hjá YAY. Hún starfar sem markaðsstjóri hjá YAY og hefur verið hjá fyrirtækinu frá upphafi. Sagan þeirra er ótrúlega áhugaverð og þau halda bara áfram að stækka. Sigga ætlar að segja okkur frá því hvernig þetta ferðalag hófst og hvaða vörur þau bjóða uppá. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð, GIGGÓ og nýjasti meðlimur í auglýsingaflóru podcastsins er Dagar!
Jun 12, 2024
54 min
46. Unnur Ýr Konráðsdóttir - Lucinity
Unnur hjá Lucinity situr til móts við mig á þessum fallega degi. Við nöfnurnar ætlum að tala um skemmtilega starfsþróun Unnar yfir í mannauðsmálin, hvernig það er að vinna hjá nýsköpunarfyrirtæki og auðvitað almennan áhuga okkar á þessum elskulega málaflokki.  Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup, Alfreð og GIGGÓ.
Apr 22, 2024
53 min
45. Jakobína Árnadóttir - Hrafnista
Gestur þáttarins heitir Jakobína og starfar sem mannauðsstjóri Hrafnistu. Við settumst niður og ræddum stefnumótunarvinnu, fræðslumál, styttingu vinnuvikunnar og allskonar skemmtilegt sem er í gangi hjá þeim. Í raun má segja að undanfarin ár hafi Hrafnista farið í gegnum mikið umbreytingarferli og það kemur skýrt fram miðað við það sem hún segir okkur. Þau vinna meðal annars með það að þau eru þjónustufyrirtæki og það sem kjarnar starfseminnar þeirra er í raun þetta: “Við vinnum á heimili fólks en þau búa ekki á vinnustaðnum okkar!”   Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum – Akademias, HOOBLA, YAY, Moodup og Alfreð.
Feb 7, 2024
47 min
44. Adriana Pétursdóttir - Formaður Mannauðs
Í spjallið til mín að þessu sinni kom Adriana Pétursdóttir. Ég þarf varla að kynna hana til leiks en hún starfar sem leiðtogi starfsmannaþjónustu RIO TINTO og í byrjun árs tók hún við sem formaður Mannauðs, okkar allra besta mannauðsfélags. Við vorum svo sem sammála um það að við hefðum getað spjallað í marga klukkutíma en hér á eftir förum við yfir allt þetta helsta – Mannauðsdaginn sjálfan, hvað hún brennur helst fyrir í tengslum við mannauðsmál og svo auðvitað þróunin framundan. Svo er nú smá rúsína í pylsuendanum, þetta er sem sagt þáttur nr. 44 og í fyrsta skipti lentum við í smá tæknilegum örðugleikum. Ekkert alvarlegt sem betur fer en það er sem sagt smá fiff þarna í lokin sem ég vona að þið getið fyrirgefið :)   Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum – Akademias, YAY, Moodup og Alfreð.
Nov 23, 2023
1 hr 19 min
43. Aðalheiður Hreinsdóttir - LearnCove
Gestur þáttarins heitir Aðalheiður Hreinsdóttir, kölluð Heiða, og starfar sem framkvæmdastjóri LearnCove. Og hvað er nú LearnCove eiginlega? Jú það er auðvitað fræðslukerfi sem Heiða ætlar að segja okkur frá í þessu lauflétta spjalli. Við ræddum um hvað kerfið býður upp á, hverjir eru kostir þess, hversu notendavænt það er og af hverju þetta kerfi er betra en önnur. Til þess að fá að vita allt um það er bara um að gera að koma sér vel fyrir og leggja við hlustir.  Styrktaraðilar þáttarins eru alveg geggjaðir – Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
Oct 17, 2023
32 min
42. Sverrir Hjálmarsson - Akademias
Góðan daginn kæru hlustendur. Gestur þáttarins heitir Sverrir Hjálmarsson og starfar sem ráðgjafi hjá Akademias. Við Sverrir eigum það sameiginlegt að hafa mikinn áhuga á fræðslumálum og þess vegna er það aðal umræðuefni þáttarins. Sverrir segir okkur frá starfi sínu hjá Akademias og þeirri þróun sem á sér stað hjá þeim. Þar má meðal annars nefna fjölbreyttar námsleiðir, rafræna fræðslusafnið, sprettina og fleira skemmtilegt. Við ræddum líka aðeins starfsþróun og svo gervigreind í tengslum við fræðslumál. Stórskemmtilegt spjall þó ég segi sjálf frá!
Sep 28, 2023
1 hr 10 min
41. Inga Þórisdóttir - Via Optima
Í spjallið til mín að þessu sinni kom Inga Þórisdóttir sem starfar sem stjórnendaþjálfi hjá Via Optima. Hún segir okkur frá öllum þeim verkefnum sem hún sinnir í starfi sínu en áhuginn liggur aðallega í stjórnendaþjálfun, starfsmannasamtölum ásamt streitu, kulnun og öllu sem það tengist. Inga segir okkur einnig frá sinni einlægu upplifun af því að vera sagt upp störfum og hvernig maður þarf sjálfur að bera ábyrgð á sinni vegferð og skapa þannig tækifæri. Styrktaraðilar þáttarins eru ekki af verri endanum eins og alltaf – Akademias, YAY, Moodup og 50skills.
Apr 6, 2023
47 min
Load more