Á ég að hend'enni?
Á ég að hend'enni?
Á ég að hend'enni?
Halldóra Geirharðsdóttir og Steinunn Ólína hafa marga fjöruna sopið, stundum saman, stundum sundur. Nú í miðju lífsins er tiltekt innra jafnt sem ytra efst á baugi og því ætla þær að bera saman bækur sínar í orðsins fyllstu merkingu. Þær ætla að byrja á því að gera rassíu í bókaskápunum. Skilja sauði frá höfrum, finna gersemar og handsama lygaþvælu og rusl. Í hverjum þætti draga þær fram skruddur og meta hvort nauðsynlegt sé að eiga skræðuna áfram, hvort lærdómur hafi verið meðtekinn eða alls ekki. Fer hún í öndvegi, í Hirðinn, eða er öruggast að brenna hana á báli?Rannsóknarspurningin er: Eiga, eyða eða gefa?Því einhvers staðar þarf tiltektin að byrja!
21. Ég bið að heilsa eftir Inga T.
Er Halldóra gerviflautuleikari eða alvöruflautuleikari, þar er efinn! Finnst öllum gaman að dansa? Hver vill vera athyglissjúka leikkonan sem lætur á sér bera á viðburðum annara? Steinunn deilir því að amma hennar hnerraði sjö sinnum en er augljóslega eftirbátur hennar því í þættinum hnerrar hún aðeins fimm sinnum. Er það forboði um eitthvað? Ferðasöngbók er til umræðu enda ættu slíkar að vera til á öllum heimilum. Steina les ljóð en Halldóru tekst að heyra það ekki þótt hún...
Feb 19, 2025
45 min
20. Bylting miðaldra þjónustufulltrúa (kvenna)
Eru konur alltaf að gerast þjónustufulltrúar án þess að gera sér grein fyrir því? Halldóra og Steinunn vilja nýja vængi enda búnar að vera þjónustufulltrúar í þrjá áratugi. Halldóra er meira miðaldra en Steina því hún heldur að það heiti ,,að larpa“ þegar unglingar eru ,,að lana.“ Eru barnaherbergi og stærð þeirra misskilningur frá upphafi til enda? Um það tjáir Steinunn sig enda var hún með svo lítið barnaherbergi að Harry Potter á ekkert í hana. Báðar eru þær á tímamótum og vilja nýtt...
Feb 12, 2025
47 min
19. Hugleiðsla, Botox og betri líðan
Flensa dró Steinunni nær til dauða og henni batnaði ekki fyrr en henni höfðu verið færðir svo margir blómvendir að heimilið minnti á líknardeild. Dóra vænir vinkonu sína um að hafa farið í botox en Steinunn segir þetta nýja 'look' stafa af massívum varaþurrk. Báðar gangast vinkonurnar við útlitsröskun en spurningin er; Afhverju byrjar svona geðveiki að búa um sig? Dóra lærði að finna ljósið í þriðja auganu á hugleiðslunámskeiði í Oxfordskíri og veit nú að sálin býr ekki í hjartanu. Þær eru sa...
Feb 5, 2025
45 min
17. Ég negli og saga og smíða mér bát
Í kjölfar kríunnar, er bók sem breytti lífi Dóru og hafði mikil áhrif á Steinunni líka. Dóra komst að því við lestur bókarinnar að hún hugsaði of smátt og að hún ætti ekki að láta neitt stoppa sig í að láta drauma sína rætast. Steinunni finnst alltaf gaman að vakna þótt þyrmt geti yfir hana stuttu síðar. Dóra talar um frelsið sem hún upplifir á skíðum en nennir ekki að tala um það en hún ert með afskaplega sérstaka aðferð til að meta eigin heilsu og henni virðist sama hvort hún smiti fjölda m...
Jan 22, 2025
50 min
16. Manngerðirnar og baslið eilífa við egóið
Steinu fannst á unglingsárunum Dóra alltaf vera há og spengileg á meðan hún upplifði sig sem litla kiðfætta buddu. Dóra segir Ólöfu Skaftadóttur vera alvöru knattspyrnukonu en sjálf hafi hún aðeins leikið handboltamanneskju. Steinunn hefur gaman af kvartsáru fólki upp að ákveðnu marki en Dóra hefur litla elsku fyrir slíku. Ef sá sem kvartar fer í taugarnar á manni þá hlýtur sá hinn sami að minna mann á sinn eigin kvartara, ekki satt? Dóra fer inn í hégómleikann og dettur í samanburðinn en til...
Jan 14, 2025
47 min
15. Spáðu í mig... þá mun ég spá í þig
Rósir eru sköpunarverkið sjálft enda er rósin tvíkynja. Og fíflið í Tarot heldur á rós sem sannar þvælukenningar Steinunnar um að við séum í raun öll rósir eða meðlimir í Rósareglunni. Halldóra umber kjaftæði Steinunnar og rifjar upp road-trip þeirra vinkvennanna en þá var með í för kynlífsdúkkadúkkuna Nína sem var gerð ódauðleg í tónlistarmyndbandi hljómsveitarinnar Oxzmá. Dóra vitnar í lífstílsfræðing sm hún man ekki hvað heitir en kannski er nafnið MEL sem kennir að við eigum bara að leyfa...
Jan 9, 2025
51 min
14. Spáum í spilin 2025
Steinunn er afburða beinþýðandi á meðan Halldóra fattaði á ögurstundu hvað hún er léleg í ensku. Köttur hefur hægðir í beinni. Tsjíkú-ví er ákall til kakaóguðsins og það skal hrópa þegar drukkið er alvöru- kakaó sem að þessu sinni er bragðbætt með stjörnuanís og einhverju sem enginn getur munað hvað heitir! Mun bókin deyja drottni sínum í framtíðinni eða er myndmálið það sem koma skal! Halldóra og Steinunn láta spilin segja til um framtíðina enda eru spádómar það eina haldbæra í heiminum!
Jan 1, 2025
46 min
13. Jólaóratoría Steinunnar og Halldóru
Þetta mun þegar fram líða stundir verða valinn jólalegsti jólaþáttur allra tíma. Halldóra beygir af yfir Jólaguðspjallinu, Steinunn er engu skárri og þusar eitthvað í gegnum tilinningasemina sem grípur þær báðar. Saman sitja þær vinkonurnar, hámiðaldra, jóla yfir sig og ræða fæðingu frelsarans. Barn allra barna. Og auðvitað ástina skilyrðilslausu.
Dec 24, 2024
53 min
12. Guðsríki er að velja sér góða leikfélaga
Steinunn syngur Disney lög með börnunum sínum því henni misfórst að kenna börnum sínum íslensku jólalögin þegar hún bjó í Bandaríkjunum. Hversu mikilvægt er að eiga góða leikfélaga? Er það himnaríki þegar maður á slíkan? Halldóra var alveg frjáls til að gerast poppari á meðan að í ljós kemur að Steinunn þorði alls ekki að leggja slíkt fyrir sig.
Dec 22, 2024
49 min
Load more