Váfuglinn
Váfuglinn
Váfuglinn
Gott kakó
1 hour 6 minutes Posted Jul 18, 2018 at 1:21 pm.
0:00
1:06:43
Download MP3
Show notes
Váfugl dagsins er óhræddur við að taka á stóru málunum bæði heima fyrir og úti í hinum stóra heimi. Við kynnum okkur úrlausn erfiðra deilumála með aðstoð sýnishorna úr bíómyndum og förum svo rakleiðis í Kaupfélagið á Sauðárkróki.
Um leið og vorið heldur loks innreið sína í Vaglaskóg fyrir norðan, skoðum við stöðuna í menningarmálum á Íslandi yfir eldglóandi, hráum kakóbolla. Við ljúkum svo flugferðinni hjá hinni eldhressu Guðrúnu í borg lystisemdanna, Las Vegas. Viva Las Vegas.
Glöggir áheyrendur kunna ef til vill stundum að heyra bank í ofnalögnum í bakgrunninum. Eru "laumufarþegar" í kjallaranum á upptökuveri Váfuglsins?