Show notes
Listin liggur heldur betur ekki í dvala á sumrin. Verk eftir Barböru Árnason eru sýnd á Gerðarsafni í Kópavogi. Melkorka Ólafsdóttir fjallar um þessa merkilegu listakonu og Pétur Magnússon ræðir við Brynju Sveinsdóttur, forstöðumann Gerðasafns. Una Schram ræðir við pólsku listakonuna Alicju Kwade á i8 gallerý þar sem sýning hennar, Silent Archibionts, stendur yfir. Við heimsækjum samtímasafnið Ars Longa á Djúpavogi og heyrum frá yfirstandandi sýningu, Í lággróðrinum. Kolbeinn Rastrick kvikmyndagagnrýnandi fjallar um Targets eða Skotmörk frá árinu 1968, hryllingsmynd sem veltir fyrir sér hvernig eðlilegur drengur verður að fjöldamorðingja. Tónlist flutt í þætti: Jack J - Falling Down a Well Men I Trust - Space Is the Place

