Show notes
Kristján Guðjónsson tekur yfir seinni hluta Tengivagnsins í næstu viku. Þá verður spilað viðtal í fjórum hlutum við Jóhann Pál Árnason heimspeking og félagsfræðing. Hann kom og sagði frá seríunni. Næstu helgi verður í fyrsta sinn sett á svið ópera á sumartónleikum í Skálholti. Við heyrum frá listrænum stjórnanda hátíðarinnar, Benedikti Kristjánssyni. Helmingur ljóðagengisins Múkk heldur af stað í Ljóðagöngu frá Borgarbókasafninu í Grófinni í kvöld. Tengivagninn hitti þær Karólínu og Önnu Rós á safninu og fór svo í nokkrar gallery heimsóknir. Samsýningin Leiðir yfir land stendur yfir í sýningarsal SÍM og Geislagarð er að finna Y gallery í Kópavogi.Tónlist spiluð í þætti: Black Country, New Road - BestiesSaya Grey - Lie Down Erika De Casier - Delusion

