Taktíkin var á svæðinu þegar að Hleðslumótið í CrossFit fór fram á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit.
„Það þýðir ekkert að dvelja í fortíðinni og hugsa hvað eitthvað var leiðinlegt, erfitt eða ósanngjarnt. Það hjálpar ekki neitt. Það sem skiptir máli er að horfa fram, hugsa um það sem maður er að gera núna og tækla það.“
Ragnheiði Söru þarf ekki að kynna fyrir neinum CrossFit áhugamanni eða konu. Hún var mætt á Hleðslumótið á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Hérna er hún í viðtali hjá Skúla B. Geirdal í Taktíkinni.
Þá ræðir Skúli einnig við Unnar Helgason meðeigandi CrossFit Akureyri um Hleðslumótið sjálft.
Guðbjörg Ósk Sveinsdóttir CrossFit iðkandi og keppandi er nýkomin heim frá Kýpur þar sem hún var að keppa á sínu fyrsta móti erlendis í liðakeppni. Með henni í liði voru Daníel, Kristinn og Nanna Ýr öll frá CrossFit Akureyri.

