Show notes
Klara Bjartmarz er fyrsta konan sem gegnir stöðu framkvæmdastjóra KSÍ frá því að fyrsti launaði framkvæmdastjórinn var ráðinn árið 1967.
Hún hefur starfað fyrir KSÍ síðan í janúar 1994, lengst af við mótamál og landslið kvenna. Þá gegndi hún jafnframt starfi skrifstofustjóra KSÍ um árabil. Að auki hefur Klara starfað fyrir UEFA sem eftirlitsmaður á alþjóðlegum leikjum.
Klara er einnig mikil kajakkona og varð Íslandsmeistari kvenna í róðri á sjókajak 2014 og í kjölfarið valin kajakkona ársins af Siglingasambandinu.

