Taktíkin
Taktíkin
N4
#36 Egill Heinesen og Arnar Már - Blakdeild KA
26 minutes Posted Aug 27, 2019 at 5:38 pm.
0:00
26:13
Download MP3
Show notes

KA óstöðvandi í blaki

Bæði lið karla og kvenna í blaki hjá KA eru þrefaldir meistarar í blaki, deidlar-, bikar,- og Íslandsmeistarar. Þetta er í fyrsta skipti í sögu blaksins sem eitt og sama félagið er handhafi allra titla karla- og kvennamegin.

Egill Heinesen og Arnar Már Sigurðsson mæta fyrir hönd stjórnar blakdeildar KA til þess að ræða þann gríðarlega uppgang sem hefur verið í greininni hjá félaginu. Karlaliðið hefur verið nær óstöðvandi síðustu tímabil og kvennaliðinu tókst heldur betur að snúa við blaðinu og rífa sig upp úr neðsta sæti deildarinnar í það efsta. Að baki slíkum árangri liggur mikil vinna margra einstaklinga, ekki bara leikmanna og þjálfara, heldur stjórnar, yngriflokkastarfs, sjálfboðaliða, stuðningsmanna og fleiri.