Show notes
Markadrottning Olís-deildar kvenna 2019
Martha Hermannsdóttirleikmaður KA/Þór átti ótrúlegt tímabil með nýliðunum í efstu deild í handbolta og endaði tímabilið sem markadrottning deildarinnar með 138 mörk í 21 leik. Þá var hún einnig valin í fyrsta skipti í A-landsliðið, 35 ára gömul.
Martha er mikil fyrirmynd innan sem utan vallar. En auk þess að vera afreksíþróttakona með fjöldan allan af viðurkenningum á bakinu þá er hún einnig þriggja barna móðir sem rekur Tannlæknastofa Mörthu Hermannsdóttur.
Íþróttir - lífið - fjölskyldan - tímabilið - ferillinn

