Taktíkin
Taktíkin
N4
#19 Alexander Heiðarsson júdókappi og Rut Herner körfuknattleikskona
26 minutes Posted Aug 27, 2019 at 5:16 pm.
0:00
26:07
Download MP3
Show notes

Alexander Heiðarsson júdókappi og Rut Herner körfuknattleikskona eru gestir Skúla Braga í Taktíkinni að þessu sinni.

„Það sem stendur uppúr er þegar að ég tók Evróputúrinn í sumar, keppti þá á tveimur European Cup mótum. Svo vann ég til verðlauna á alþjóðlegu móti í Svíþjóð og þá fékk ég KEA styrkinn núna um daginn,“ sagði Alexander Heiðarsson einn efnilegasti júdókappi landsins þegar að hann var spurður að því hvað stæði uppúr á árinu 2018. Hann stefnir á stóra hluti á næsta ári og Ólympíuleikana 2024.

„Hæfileikarnir, getan og þekkingin í körfubolta er orðin svo gríðarleg. Þú getur byggt þig upp á svo mörgum sviðum. Þetta er ekki lengur bara þannig að þú ert annaðhvort stór undir körfunni eða lítill útá velli sem hleypur með boltann, það er svo margt þarna á milli og við erum alveg farin að sjá það. Enda erum við orðin miklu betri í körfubolta núna en við vorum fyrir einhverjum árum síðan,“ sagði Rut Herner Konráðsdóttir fyrirliði Þórs í körfubolta í áhugaverðu viðtali um lífið í körfuboltanum og stöðuna á körfuboltanum hjá Þór á Akureyri.

„Maður lærir það held ég bara mjög snemma að það sem gerist á vellinum, það skilur maður eftir á vellinum,“ sagði Rut einnig, en konan hennar Unnur Lára Ásgeirsdóttir er einnig leikmaður liðsins og þær eiga saman eitt barn og annað á leiðinni.