Show notes
Óli Stefán Flóventsson er mættur norður á Akureyri til þess að taka við þjálfun meistaraflokks KA í knattspyrnu. Hann var í ítarlegu viðtali í síðasta þætti af Taktíkinni. „Þjálfun skiptist í raun í fjóra þætti. Það er Tækniþjálfun sem er sendingar, móttökur o.s.frv. sem við þjálfarar eyðum ofboðslega miklum tíma í. Það er Taktíkin sem við eyðum líka ómældum tíma í. Það er Fitnessið sem er líkamlega vinnan. En síðan er það fjórði þátturinn sem er hausavinnan og við hérna á Íslandi erum ekkert að eyða ofboðsla miklum tíma í þann þátt. Þetta er eins og borð með fjóra fætur, þeir eru allir jafn mikilvægir því ef einn fóturinn er brotinn þá er borðið valt,“ sagði Óli Stefán.
Ferillinn, þjálfunin, fjölskyldan og lífið. Hér kynnumst við þessum nýja þjálfara KA í nærmynd.

