Show notes
Karin Kristjana Hindborg er mörgum kunn, en síðustu 10 ár hefur hún rekið verslunina NOLA og þekkir snyrtivörumarkaðinn gríðarlega vel. Karin hefur um þó nokkurt skeið tekið umræðuna á sínum miðlum um neytendablekkinguna sem fyrirfinnst hér á landi hvað varðar snyrtivörur af gráa markaðnum og fyrir skömmu rataði sú umræða í fjölmiðla. Hún segir það vera henni hjartans mál að þetta komi upp á yfirborðið. Í þessum þætti ræðir hún þessi mál og óskar eftir skýrari lagaramma og frekara eftirliti á snyrtivörum sem seldar eru í verslunum víða - hvers vegna? Jú því það er enginn rekjanleiki, engin ábyrgð og enginn gæðastimpill á vörum af gráa markaðnum. * Þessi þáttur er í boði Max Factor, Netgíró og Klaka.

