Spegilmyndin
Spegilmyndin
spegilmyndin
37. Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti - Góð ráð til að komast í fitubrennsluform og koma lagi á blóðsykurinn
1 hour 1 minutes Posted May 16, 2024 at 11:46 am.
0:00
1:01:04
Download MP3
Show notes
Inga Kristjánsdóttir næringarþerapisti er nýjasti gestur Marín Möndu í Spegilmyndinni. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan og heilsu fólks  - til að koma í veg fyrir bólgusjúkdóma. Hún deilir reglulega hinum ýmsu fróðleiksmolum  á samfélagsmiðlunum og heldur í dag netnámskeið fyrir fólk sem vill huga betur að heilsunni sinni, sigrast á sykrinum og jafnvel komast í fitubrennsluform. Hér er á ferðinni ákaflega skemmtileg kona sem brennir fyrir því að láta gott af sér leiða og fræða fólk um blóðsykurójafnvægi sem hún telur vera einn helsti heilsufaraldur þessarar aldar.