Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#109 - Hrafnhildur elskar að spila golf á nóttunni
1 hour 7 minutes Posted Apr 27, 2026 at 9:52 am.
0:00
1:07:17
Download MP3
Show notes

Við fengum góðan gest í Seinni níu þessa vikuna. Hrafnhildur Skúladóttir, fyrrverandi landsliðsfyrirliði í handbolta, þjálfari og nú ökukennari kom í heimsókn til okkar.

Hrafnhildur er búsett í Vestmannaeyjum og er fjórar mínútur á golfvöllinn frá heimili sínu. Við ræðum aðeins golfið í Eyjum og það frelsi sem fylgir því að komast nær alltaf í golf.

Hrafnhildur segir okkur frá uppáhalds golfholunum sínum í Eyjum, hún kemur með skemmtilegt draumaholl og einnig mjög áhugaverða kraftröðun yfir þau golfsvæði sem hún væri til í að heimsækja í golfferðum á næstu árum.

Stórskemmtilegur þáttur!