Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#106 - Golf er kvíðalyfið hjá Rikka G
1 hour 29 minutes Posted Apr 8, 2026 at 12:42 am.
0:00
1:29:13
Download MP3
Show notes

Við fengum frábæran gest í Seinni níu þessa vikuna. Útvarpsmaðurinn og íþróttalýsandinn Ríkharð Óskar Guðnason var gestur þáttarins sem var að hluta helgaður Masters.

Rikki er ljómandi góður kylfingur með rétt tæpa fimm í forgjöf og byrjaði ungur að spila golf í Öndverðarnesi. Rikki átti að verða múrari og sagði okkur skemmtilega frá því hvernig hann endaði sem útvarpsmaður.

Við spáðum í spilin fyrir Masters, Rikki kom með eitt draumaholl og annað alls ekki draumaholl, spurningar frá hlustendum og svo fengum við frábæra kraftröðun þar sem Rikki valdi topplista yfir hrun kylfinga á Masters.

Frábær þáttur þar sem víða er komið við. Rikki fór yfir golfið sitt á mjög einlægum nótum.