Seinni níu
Seinni níu
Logi Bergmann og Jón Júlíus Karlsson
#98 - Stebbi Hilmars er með plástur á pútternum
55 minutes Posted Feb 9, 2026 at 9:11 am.
0:00
55:52
Download MP3
Show notes

Við fengum til okkar meiriháttar gest í Seinni níu því söngvarinn ástsæli Stefán Hilmarsson kom í heimsókn. Við komum víða við í þættinum en Stefán segir okkur frá golfinu sínu og hvernig það kom til að hann hóf golfiðkun.

Stefán hóf að spila árið 2001 en Eyjólfur Kristjánsson dró hann í íþróttina en þeir höfðu báðir fylgst með golfi í sjónvarpi löngu áður. Tony Finau er uppáhaldskylfingurinn hjá Stefán þessa dagana og er það þessi sérkennilega golfsveifla sem er að heilla.

Við fengum stórskemmtilega kraftröðun en Stefán valdi sína eftirlætisvelli á Alicante svæðinu og valdi einnig nokkur draumaholl.

Svo kom í ljós að Stefán hefur 10 sinnum orðið vitni af því þegar aðrir en hann hafa farið holu í höggi.

Stórskemmtilegur þáttur á alveg sérstaklega léttum nótum.