Við fáum til okkar góðan gest í Seinni níu þessa vikuna því Alþingismaðurinn Sigmundur Ernir Rúnarsson kom í heimsókn til okkar. Hann hefur leikið golf lengi og hóf ungur að leika golf á Akureyri. Í raun byrjaði hann ferilinn sem kylfusveinn og stundaði það af meiri krafti en sjálft golfið fyrstu árin.
Sigmundur er með 14 í forgjöf og spilar að eigin sögn frekar tíðindalítið golf. Hann er frekar beinn af teig og fær fáar sprengjur.
Í þættinum segir Sigmundur okkur aðeins frá sínum eftirlætis velli sem er La Gomera er staðsettur á eyju við hlið Tenerife.
Sigmundur velur draumahollið og við fáum einnig kraftröðun yfir fimm vinsælustu velli ársins í golfhermi hjá Golfsvítunni.
Skemmtilegur þáttur þar sem er komið víða. Meðal annars er rætt um hvort golfvöllur í Viðey gæti orðið að kosningamáli?



