Show notes
Í dag ætlum við að kynna okkur smáforritið Bata, sem hefur það markmið að styðja við fólk með fíknisjúkdóma. Þórdís Rögn Jónsdóttir, annar stofnenda fyrirtækisins Rekovy á bak við smáforritið, ætlar að setjast hjá okkur í upphafi þáttar og segja okkur meira. Á morgun verður haldið upp á 25 ára afmæli Persónuverndar – stofnunin býður til afmælismálþings í Eddu, húsi stofnunar Árna Magnússonar, þar sem fjallað verður um stöðu persónuverndar í síbreytilegum heimi. Margt hefur breyst síðan stofnunin var sett á stofn og Helga Þórisdóttir forstjóri Persónuverndar ætlar að kíkja við og spjalla um það. Síðan fáum við pistil frá Páli Líndal umhverfissálfræðingi og pistlahöfundi Samfélagsins. Tónlist úr þættinum: PAUL SIMON - You Can Call Me Al. OYAMA - Vinur vina minna.

