Show notes
Aðgreindur hjóla- og göngustígur, Kársnesstígur, hefur verið tilefni umræðna meðal íbúa Kópavogs undanfarnar vikur. Stígurinn á að tengjast Fossvogsbrú, fyrstu stóru framkvæmdinni í fyrsta áfanga Borgarlínu, sem tengir vesturhluta Kópavogs og Reykjavíkur yfir Fossvog. Í nóvember samþykkti bæjarstjórn Kópavogs tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir stíginn, Kársnesstíg, sem kynnt var fyrir íbúum í lok sama mánaðar. Finnur Pálmi Magnússon, hjólreiðamaður, Kópavogsbúi og stjórnarmaður í Útivistarsamtökum Kársness, fór yfir kosti og galla nýs Kársnesstígs með okkur. Jón Gunnar Þorsteinsson, ritstjóri Vísindavefsins kíkti við í síðari hluta þáttar og sagði okkur hvað vakti mesta athygli á Vísindavefnum árið 2025. Þar var ýmislegt sem tengist samfélagsumræðunni á árinu en annað sem kom skemmtilega á óvart. Umsjón: Ástrós Signýjardóttir og Pétur Magnússon. Tónlist þáttarins: BENNI HEMM HEMM feat. RETRO STEFSON - FF ekki CC. LOU REED - Caroline Says II. Fleet Foxes - Helplessness Blues (#6 plata vikunnar (Helplessness Blues) maí 2011).

