Samfélagið
Samfélagið
RÚV
Gervigreind í skólum, Fullveldisdagurinn 1956 og barnagælur
55 minutes Posted Dec 1, 2025 at 1:00 pm.
0:00
55:00
Download MP3
Show notes
Fyrir þremur árum, í nóvember 2022, var spunagreindarforritið ChatGPT frá OpenAI opnað almenningi. Þessi viðburður leysti úr læðingi eiginlega sprengingu í notkun spunagreindar – og þar voru skólar alls ekki óhultir. En hvernig hafa skólar tekist á við þessa þróun? Og enn fremur; hvernig ættu þeir að takast á við þessa þróun? Tryggvi Thayer, aðjúnkt í upplýsingatækni, nýsköpun og miðlun við HÍ og ræðir þetta við okkur í upphafi þáttar. En í dag er Fullveldisdagurinn og 107 ár frá því að Sambandslögin voru samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi tímamót fara að sjálfsögðu ekki fram hjá safnstjóra Ríkisútvarpsins, henni Helgu Láru Þorsteinsdóttur, sem ætlar að kíkja við seinna í þættinum og reiða fram upptökur úr safni RÚV sem tengjast þessum degi. Í dag er líka dagur íslenskrar tónlistar – og við ætlum að rifja umfjöllun samfélagsins um barnagælur og vögguvísur, sem var fyrst flutt fyrir um það bil ári síðan.