Samfélagið
Samfélagið
RÚV
Lofthreinsiver og niðurdæling Co2, hverfistré, stimplun og vísindaspjall
59 minutes Posted May 22, 2024 at 1:00 pm.
0:00
59:19
Download MP3
Show notes
Fyrr í mánuðinum var lofthreinsiverið Mammoth sem svissneska fyrirtækið Climeworks starfrækir ræst við virkjun Orku náttúrunnar á Hellisheiði. Þar verður innan skamms hægt að fanga allt að 36 þúsund tonn af koltvísýringi á ári úr andrúmsloftinu sem svo er dælt niður í jörðina þar sem hann binst við berglög. Þar kemur Carbfix til skjalanna sem býr yfir tækni sem gerir það kleift. Við ætlum að ræða þetta við Ólaf Elínarson samskiptastjóra Carbfix. Í sumar útnefnir Skógræktarfélag Reykjavíkur hverfistré Reykjavíkur, í öllum tíu hverfum borgarinnar og hefur óskað eftir tilnefningum frá íbúum og áhugafólki. Við ætlum að tala um trén í borgarlandinu við Auði Kjartansdóttur framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Reykjavíkur. Við heyrum málfarsmínútu og í lok þáttar kemur Edda Olgudóttir til okkar í Vísindaspjall.