Samfélagið
Samfélagið
RÚV
Upphitun fyrir 1. maí, Reykjavíkurmaraþon í 40 ár, pistill frá Páli Líndal
58 minutes Posted Apr 30, 2024 at 1:00 pm.
0:00
58:27
Download MP3
Show notes
Kröfugöngur, baráttufundir, þrusuræður, kaffiveitingar og lúðrahljómur - já 1. maí er á morgun. Við ætlum af því tilefni að ræða stemninguna þennan dag og helstu baráttumál samtímans við Örnu Jakobínu Björnsdóttur, formann Kjalar, stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu - en hún verður fundarstjóri á útifundi á Ingólfstorgi í Reykjavík á morgun. Á þessu ári er því fagnað að 40 ár eru liðin frá því að Reykjavíkurmaraþon var fyrst haldið og eflaust eru einhverjir hlauparar farnir að huga að því ágæta hlaupi í ár og æfa stíft. Við ætlum að tala um maraþonhlaup við Sigurbjörn Árna Arngrímsson skólameistara og doktor í íþróttafræðum. Við fáum svo pistil frá Páli Líndal, umhverfissálfræðingi í lok þáttar, í pistlinum rekur hann rannsóknir á því hvernig mismunandi arkitektúr verkar á fólk. Tónlist: Bubbi Morthens - Hulduþula. BOB MARLEY & THE WAILERS - Buffalo Soldier.