Samfélagið
Samfélagið
RÚV
Gagnaglíma, öryggi undir stýri, málfarsmínúta og endurröðun DNA
59 minutes Posted Apr 10, 2024 at 1:00 pm.
0:00
59:22
Download MP3
Show notes
Hvað er gagnaglíma og hvað gerir Gagnaglímufélag Íslands? Við komumst að því þegar Hjalti Magnússon sérfræðingur í netöryggi og formaður Gagnaglímufélagsins sest hjá okkur og segir okkur allt um málið. Við fjöllum líka um öryggi undir stýri. Sigrún A. Þorsteinsdóttir sérfræðingur í forvörnum hjá Vís ræðir við okkur um notkun snjalltækja við akstur, hætturnar af því og líka tækifærin sem geta falist í nýrri tækni. Viðtal sem var áður á dagskrá í apríl í fyrra. Við heyrum málfarsmínútu og Edda Olgudóttir kemur svo til okkar í lok þáttar í vísindaspjall.