Samfélagið
Samfélagið
RÚV
Sálræn áhrif hörmunganna á Gaza, Reykjavíkurskákmót, umhverfispistill
59 minutes Posted Mar 14, 2024 at 1:00 pm.
0:00
59:18
Download MP3
Show notes
Við ætlum að ræða hvaða áhrif eyðilegging, endurtekinn missir, ótti, matarskortur og linnulausar árásir hafa á andlega líðan fólks, bæði í núinu og til frambúðar - einkum í samhengi við yfirstandandi árásir ísraelshers á Gaza þar sem almenningur býr við hörmulegar aðstæður en líka áhrifin á heimsbyggðina sem stendur á hliðarlínunni með snjallsímann og getur fylgst með öllu á samfélagsmiðlum í nær rauntíma. Helena Jónsdóttir, sálfræðingur sem starfað hefur fyrir samtök Lækna án landamæra, ræðir þetta við okkur, en hún hefur meðal annars starfað í Afganistan, Jemen og Suður-Súdan. Reykjavíkurskákmótið verður sett í Hörpu á morgun og stendur yfir helgina. Þátttakendur skipta hundruðum og þar á meðal eru skákáhrifavaldar sem senda út beint streymi frá mótinu. Gunnar Björnsson, forseti Skáksambands Íslands, segir okkur frá þessu. Endurfluttur umhverfispistill frá Stefáni Gíslasyni, umhverfisstjórnunarfræðingi: „Á ég að gera það?“