Morgunútvarpið
Morgunútvarpið
RÚV
10. jan. -Heitavatnsskortur í Hveragerði, íþróttafélagsfræði, fuglaflensa o.fl.
1 hour 52 minutes Posted Jan 10, 2025 at 7:03 am.
0:00
1:52:00
Download MP3
Show notes
Íbúar í Hveragerði hafa þurft að þola köld hús og kaldar sturtur í frostatíðinni vegna bilunar í aðalborholu bæjarins. Í kvöldfréttum í gær var rætt við íbúa og ljóst var að þetta hefur reynt á þolrifin. Pétur G. Markan, bæjarstjóri í Hveragerðisbæ, verður gestur okkar í upphafi þáttar.
Íslenska karlalandsliðið í handbolta gerði gott jafntefli við Svíþjóð í fyrri æfingaleik liðanna í aðdraganda HM í gærkvöldi. Við ætlum að ræða við Viðar Halldórsson, prófessor og sérfræðing í félags- og sálfræði íþrótta, um væntingar um árangur og andlegu hliðina á stórmótum.
Hverjar eru helstu leiðbeiningar til kattaeigenda vegna fuglaflensusmits sem greindist í heimilisketti á dögunum? Þóra J. Jónasdóttir fer yfir þau mál með okkur.
Við höldum áfram umræðu um hugmyndir Donalds Trump um að ná yfirráðum yfir Grænlandi þegar Þórdís Ingadóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérfræðingur í alþjóðlegum refsirétti, kemur til okkar.
Við förum síðan yfir fréttir vikunnar með fjölmiðlamanninum Birni Inga Hrafnssyni og lögmanninum Helgu Völu Helgadóttur.