Show notes
Guðmundur J. Óskarsson, sviðsstjóri hjá Hafrannsóknastofnun, verður gestur okkar í upphafi þáttar en stefnt að því að fyrsti leiðangur til loðnurannsókna á þessu ári hefjist um eða upp úr næstu helgi.Björn Berg Gunnarsson, fjármálaráðgjafi, kemur í sitt hálfsmánaðarlega spjall um fjármál heimilisins.Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs, ræðir við okkur um aukinn áhuga Bandaríkjastjórnar á Grænlandi og öryggis- og varnarmál á norðurslóðum.Við höldum áfram að ræða stöðuna í stjórnmálunum, í þetta skiptið við Ingibjörgu Isaksen, þingmann Framsóknar, og Guðbrand Einarsson, þingmann Viðreisnar.Ljósufjöll halda áfram að bæra á sér. Í nótt varð jarðskjálfti af stærðinni 2,9 mældist við Grjótárvatn. Hvað vitum við um þetta kerfi og hvað gæti verið í vændum? Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjallafræði kemur til okkar.Tryggvi Freyr Elínarson hjá Datera spjallar við okkur um breytingar sem Mark Zuckerberg kynnti á ritskoðun Meta í gær.Tónlist:Júníus Meyvant - When you touch the sky.Hljómar - Ég elska alla.Unnsteinn Manuel Stefánsson, Logi Pedro Stefánsson, Bríet - Íslenski draumurinn.Paul Simon- You Can Call Me Al.Metronomy - The Look.Sébastien Tellier - Divine.Grace, Kenya - Strangers.

