Leðurblakan
Leðurblakan
RÚV
19. Börnin sem fuðruðu upp
54 minutes Posted Jan 27, 2020 at 8:30 am.
0:00
54:00
Download MP3
Show notes
Á aðfaranótt jóladags 1945 brann hús fjölskyldu nokkurrar í smábæ í Vestur-Virginíu til grunna. Sodder-hjónin og þrjú börn sluppu út við illan leik, en hin börnin þeirra fimm hurfu inn í eldhafið.
Eftirlifandi fjölskyldumeðlimir urðu þó fljótt handviss um að börnin hefðu ekki farist í brunanum - enda fundust líkamsleifar þeirra aldrei í brunarústunum.
Þá bentu ýmsir dularfullir atburðir sem fjölskyldan varð vitni að, fyrir og eftir brunann, til þess að kveikt hefði verið í, og börnunum rænt.