Show notes
„Já, frumkvöðla- og nýsköpunarstarf er í genum okkar Íslendinga. Við höfum lifað við erfiðar aðstæður í gegnum tíðina og höfum þurft að aðlaga okkur að náttúrunni,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir doktor í lífvísindum og næringarfræðingur.
Nýsköpun og frumkvöðlastarf skipar stóran sess i endurreisn efnahags- og atvinnulífsins í kjölfar kórónaveirufaraldursins. Hún ræddi mikilvægi þessara mála í Landsbyggðum á N4.

