Show notes
Sigurður Ingi Jóhannsson ræðir afleiðingar veðurofsans, uppbyggingu mikilvægra innviða, uppbyggingu Akureyrarflugvallar, byggðamál og fleira:
„Já, svarið er já, við höfum í of langan tíma látið sitja á hakanum að byggja upp innviði, nægjanlega öfluga, vítt og breitt á landsbyggðunum,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra samgöngu- og sveitarstjórnarmála þegar hann er spurður hvort landsbyggðirnar hafi setið eftir á undanförnum árum hvað varðar ýmsa uppbyggingu.
Ráðherrann var gestur Karls Eskils Pálssonar í Landsbyggðum.

